Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.10.2014, Blaðsíða 28

Læknablaðið - 01.10.2014, Blaðsíða 28
524 LÆKNAblaðið 2014/100 R A N N S Ó K N ingur við slíka löggjöf er tvöfalt meiri hérlendis en mælst hefur í öðrum löndum.14,15 Alls 80% þátttakenda sögðust vera hlynntir henni en 12% voru á móti. Fram kom að konur voru jákvæðari en karlar og einnig þeir sem þekktu einhvern sem hafði fengið líf- færi eða var á biðlista eftir líffæraígræðslu. Þeir yngri voru einnig frekar jákvæðari í viðhorfum sínum gagnvart líffæragjöf en þeir eldri. Möguleg skýring á þessum mun á milli aldurshópa gæti verið sú að þeir eldri kunni að hafa efasemdir um að líffæri þeirra henti lengur til líffæragjafar sökum aldurs eða sjúkdóma. Slíkar skýringar hafa komið fram í öðrum rannsóknum.16,17 Þrátt fyrir afar jákvætt viðhorf reyndust einungis 5% þátttak- enda vera skráðir líffæragjafar. Þetta hlutfall er mjög lágt miðað við aðrar þjóðir og má nefna að í stórri rannsókn sem tók til ungs fólks bæði í Bandaríkjunum og Evrópu kom í ljós að rúmlega þriðjungur kvaðst vera skráður líffæragjafi.18 Þessi munur á ætlan og efndum Íslendinga sést einnig gjörla á því að 84% svarenda segjast tilbúnir að gefa sín líffæri eftir andlát, sem er talsvert hærra hlutfall en í öðrum löndum, það sama á til að mynda við um 64% Breta19 og um 62% Svía.16 Þátttakendur töldu mun líklegra að fjölskyldur þeirra veittu leyfi ef þeir væru skráðir líffæragjafar. Þó töldu 3% ólíklegt að fjölskylda þeirra myndi samþykkja að gefa úr þeim líffæri þrátt fyrir skýran vilja viðkomandi. Þetta er í samræmi við rannsókn Domínguez-Gil og félaga20 þar sem skoðað var viðhorf til líffæra- gjafa á Spáni. Í henni kom fram að árið 1993 neituðu aðstandendur í 3% tilvika þó svo að skýr vilji hins látna til líffæragjafar væri til staðar. Tíðni slíkra neitana jókst með árunum og árið 1999 kom hún fram í 4% tilvika en 6% árið 2006. Rannsóknin sýndi einnig að ef ekki var til staðar skýr ósk um líffæragjöf, var enn líklegra að aðstandendur neituðu að gefa líffæri. Í samskonar rannsókn frá Bretlandi kom fram að 6% aðstandenda neituðu að gefa líffæri þrátt fyrir að skýr vilji fyrir líffæragjöf hjá þeim látna hafi verið til staðar.21 Aukin tíðni neitunar kom einnig fram í íslenskri langtíma- rannsókn Sigurbergs Kárasonar og félaga,22 en 40% aðstandenda neituðu líffæragjöf þegar eftir henni var leitað. Þessi rannsókn dregur fram ákveðið misræmi milli mjög já- kvæðrar afstöðu fólks til þess að gefa eigin líffæri og þess hversu fáir hafa skráð sig sem líffæragjafar. Ekki er gott að segja til um hvað veldur, en kannski er framkvæmd slíkra skráninga hér á landi ekki með þeim hætti að fólki sé gert þetta nægilega auðvelt. Einnig eru þátttakendur ekki allir sannfærðir um að aðstand- endur þeirra muni taka ákvörðun í samræmi við þennan jákvæða vilja enda sýna innlendar og erlendar rannsóknir að viðhorf fjöl- skyldna er ekki eins jákvætt. Líklega skýrist það af því að eflaust hafa fæstir fjölskyldumeðlimir fengið skýr skilaboð um vilja ein- staklinga til gjafa. Löggjöf sem gerir ráð fyrir ætluðu samþykki getur ekki leyst allan vanda við líffæragjafir og henni fylgja einnig ýmsar sið- ferðisspurningar. Fjölskylda hins látna mun eftir sem áður geta komið í veg fyrir að af líffæragjöf geti orðið. Að auki má spyrja sig að því hvort heilbrigðisyfirvöld séu að nýta sér framtaks- eða athugunarleysi borgarana með því að ætla þeim sjálfkrafa sam- þykki. Sumir fræðimenn23 hafa lagt til að þetta vandamál sé best leyst með því hreinlega að skylda fólk til að taka afstöðu til gjafar á eigin líffærum eftir andlát (mandated choice). En jafnvel þó að slíkt myndi draga úr siðfræðilegum agnúum ætlaðs samþykkis, er óljóst hvaða áhrif það hefði á fjölda gjafa. Ennfremur geta jafnvel haganlegustu yfirlýsingar ekki tekið tillit til allra aðstæðna né eytt öllum efasemdum.8 Væri slík leið hins vegar farin, mætti sjá fyrir sér að fólk þyrfti til dæmis að taka afstöðu til ráðstöfunar eigin líffæra við endurnýjun ökuskírteinis. Eins og í öllum viðhorfskönnunum sem styðjast við spurninga- lista eru ákveðnar takmarkanir við túlkun þessara niðurstaðna. Spurningarnar voru fyrirfram ákveðnar og ósveigjanlegar og þeim var einungis hægt að svara með tilteknum lokuðum svar- möguleikum. Því er erfitt að segja til um hvort allir þátttakendur hafi skilið það sem við var átt og hvort uppgefnir svarmöguleikar hafi að fullu endurspeglað skoðanir þeirra og tilfinningar til svo flókins málefnis. Þá er einnig ljóst að með þessari aðferð litast rannsóknin mjög af hugmyndum rannsakenda um hvað sé mikil- vægt og hvað ekki. Engin leið er heldur fær til þess að ákvarða hversu mikla umhugsun þátttakandi leggur í svör sín né heldur hvort hann segir alltaf rétt frá sínum skoðunum. En þessi nálgun hefur einnig sína kosti. Þannig fæst allgott svarhlutfall úr nokkuð stóru úrtaki sem valið er úr Þjóðskrá af sérfræðingum Gallup. Staðlaðar spurningar og svarmöguleikar auka við áreiðanleika og gera hlutlæga tölfræðiúrvinnslu mögulega, sem og samanburð við aðrar rannsóknir. Spurningalistinn var einnig forprófaður með til- liti til skiljanleika, lengdar og orðalags og lagaður til að mæta þeim athugasemdum sem upp komu.23 Augljóst er af niðurstöðum rannsóknarinnar að Íslendingar eru mjög jákvæðir gagnvart því að gefa eigin líffæri eftir andlát, en lítið hlutfall þeirra hefur samt skráð sig sem líffæragjafa. Höf- undum þykir ljóst að hægt sé að ná miklum árangri í fjölgun líf- færagjafa á Íslandi, hvort sem það væri gert með lagabreytingum eða öðrum leiðum. Þakkir Þakkir fá styrktaraðilar rannsóknarinnar: Actavis, Fjölval, Lyfja og Öryggismiðstöðin. Tafla III. Líkur sem taldar eru á að fjölskylda gefi líffæri eftir því hvort viðkomandi væri skráður líffæragjafi eða ekki, fjöldi (%). Ef skráður Ef ekki skráður Alveg öruggt 26,8 10,6 Mjög líklegt 33,2 29,5 Frekar líklegt 20,2 27,1 Hvorki né 3,0 10,4 Frekar ólíklegt 1,9 5,1 Mjög ólíklegt 1,0 3,6 Alveg örugglega ekki 0,1 1,6 Veit ekki 8,7 12,2 Svarar ekki 5,0 0,0
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.