Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.10.2014, Síða 38

Læknablaðið - 01.10.2014, Síða 38
534 LÆKNAblaðið 2014/100 hjá Krabbameinsfélaginu og Baldur F. Sigfússon sérfræðingur í geislalækningum ráðinn yfirlæknir hennar. Félagið hóf skipulega leit að brjóstakrabbameini í nóvember 1987. Í markhópnum voru allar íslenskar konur á aldrinum 40-69 ára og tók hver leitarumferð um landið tvö ár. Því náði leitin til allrar þjóðarinnar árið 1989 og varð þar með fyrsta skipulagða brjóstakrabbameinsleitin í heiminum til að ná til heillar þjóðar. Frá upphafi var leitin að mestu kostuð af fjárlögum ríkisins, en Krabbameinsfélagið hefur annast framkvæmdina í samvinnu við lækna á Landspítalanum og víðar. Íslensk-bresk rannsókn bendir til þess að leitin hafi lækkað dánartíðni um 35-40% hjá þeim kon- um sem hafa mætt.30 Síðustu ár hefur borið mikið á alþjóðlegri umræðu um að óþarfagreiningar (ofgreiningar) séu fylgifiskar brjóstakrabba- meinsleitar, það er að leitin finni hægt vaxandi eða „sofandi“ brjóstakrabbamein sem hefðu aldrei valdið skaða og því fari hópur kvenna í meðferð að óþörfu. Umfang þessara óþarfagreininga er enn nokkuð óljóst og umdeilt, en allt bendir til þess að það sé mun minna en umfang óþarfagreininga sem tengjast leit að blöðruháls- kirtilskrabbameini.31 Blettaskoðun og fræðsluátak gegn ljósabekkjum Félag íslenskra húðsjúkdómalækna og Krabbameinsfélagið buðu um árabil ókeypis blettaskoðun einn dag í byrjun sumars. Þessi ókeypis þjónusta hófst árið 1991 og tilgangurinn var að greina tímanlega varhugaverðar breytingar á húð, einkum sortuæxli. Árið 2004 hófu sömu aðilar fræðsluátakið „Hættan er ljós“ þar sem varað var við ljósanotkun fermingarbarna, en til viðbótar stóðu að átakinu Geislavarnir ríkisins, Landlæknisembættið og Lýðheilsustöð. Í kjölfarið dró verulega úr notkun ljósabekkja og um áramótin 2010-2011 tóku gildi lög um 18 ára aldurstakmark á notkun ljósabekkja, sem var eitt af baráttumálum átakshópsins. Aðildarfélög og Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins Frá upphafi hefur Krabbameinsfélagið unnið að stuðningi við krabbameinsgreinda einstaklinga og aðstandendur þeirra og þar hafa svæðafélög um allt land unnið öflugt starf ásamt stuðnings- hópum félagsins. Á árunum 1968-1971 voru stofnuð fjölmörg svæðafélög í kjölfar kynningar á leghálskrabbameinsleitinni og var framlag félaganna einkar mikilvægt í því að koma leitarstarf- inu á laggirnar utan Reykjavíkur. Nú eru svæðafélögin orðin 22 talsins og stuðningshóparnir 11: Framför, Frískir menn (virkt eftir- lit), Góðir hálsar, Kraftur, Lungnahópurinn, Ný rödd, Ristilfélagið, Samhjálp kvenna, Stómasamtök Íslands, Stuðningshópur kvenna með eggjastokkakrabbamein og Styrkur. Þjónustumiðstöðvar eru á Akranesi, Ísafirði, Sauðárkróki, Akureyri, Reyðarfirði, Selfossi og Suðurnesjum. Félagið á með öðrum félagasamtökum átta íbúðir fyrir sjúklinga og aðstandendur. Aðildarfélögin vinna mikilvægt grasrótarstarf, meðal annars varðandi stuðning við sjúklinga, fræðslu og fjáröflun. Krabbameinsráðgjöf starfaði hjá félaginu árin 1995-2007 og var markmið hennar að auðvelda almenningi aðgang að upplýsingum og ráðgjöf varðandi krabbamein, ásamt því að veita tilfinninga- legan stuðning. Ráðgjöfin fór fram í síma og með tölvupósti. Árið 2007 var stofnuð sérstök Ráðgjafarþjónusta fyrir þá sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur þeirra. Guðrún Agnarsdóttir þáverandi forstjóri félagsins var aðalhvatamaðurinn að þessari auknu þjónustu sem er til húsa á fyrstu hæð í Skógar- hlíð 8. Fólk getur sótt þangað aðstoð við að ná jafnvægi í lífinu eftir greiningu krabbameins með viðtölum, ráðgjöf og sálfélags- legum stuðningi, auk þess að reglulega eru haldnar örráðstefnur um ýmis málefni, svo sem forvarnir og félagsleg réttindi. Fjölmörg námskeið eru í boði, til dæmis í núvitund, jóga, qi-gong og sjálfs- eflingu. Einnig er boðið upp á þjónustu við ekkjur, ekkla og aðra sem misst hafa náinn aðstandanda úr krabbameini. Árið 2014 var tekin upp sú nýjung að halda námskeið fyrir lækna og hjúkrunar- fræðinga sem sinna krabbameinssjúklingum, þar á meðal nám- skeið í samtalstækni. Námskeiðin eru vel sótt og mikil ánægja með þau. Loks vinnur Ráðgjafarþjónustan að hagsmunamálum sjúklinga í samstarfi við stuðningshópana, til dæmis varðandi endurhæfingu krabbameinssjúklinga og aukna kostnaðarhlut- deild þeirra í greiningu og meðferð, en hún er mikið áhyggjuefni. Afl félagsins Starfsemin hefur alla tíð byggst á óeigingjörnu starfi, bæði for- svarsmanna og starfsmanna félagsins og ekki síður frábæru, kraft- miklu framlagi ótal einstaklinga í aðildarfélögum sem margir hafa gefið áratugi af lífi sínu til málefnisins. Hin líftaug félagsins eru gjafir og fjárstuðningur frá almenningi og fyrirtækjum sem sýnt hafa velvild árum og áratugum saman. Meðal fjáröflunarleiða eru útgáfa minningarkorta sem hófst árið 1952, merkjasala frá 1953 og happdrætti frá því árið 1955. Árin 1958-1970 fékk Krabbameinsfélagið eina krónu af hverju heilla- skeyti Landssíma Íslands. Árin 1963-1980 fékk félagið 25 aura af hverjum seldum sígarettupakka. Frá árinu 1980 var félaginu veitt- ur ríkisstyrkur eyrnamerktur leitarstarfinu. Átakið Bleika slaufan er bæði fræðslu- og fjáröflunarátak og frá og með árinu 2000 hefur félagið helgað októbermánuð þessu átaki. Mottumars hóf göngu sína árið 2008 og hefur svipaðan tilgang, en beinist að körlum í stað kvenna. Velunnarakerfi Krabbameinsfélagsins er einkar mikilvæg fjáröflunarleið, en velunnarar eru fólk á öllum aldri sem leggur félaginu lið með mánaðarlegri greiðslu. Guðrún Agnarsdóttir þáverandi forstjóri Krabbameinsfélagsins setur bleiku slaufuna í barm Jóhönnu Sigurðardóttur þáverandi forsætisráðherra í árveknisátakinu í október 2006. Hönnuður slaufunnar, Sif Jakobs, stendur til hliðar. Mynd Ómar Óskarsson. S a G a l æ k n i S F R æ ð i n n a R

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.