Læknablaðið - 01.10.2014, Qupperneq 51
LÆKNAblaðið 2014/100 547
U M F J Ö l l U n O G G R E i n a R
Ráðherrann tók við undirskriftunum og
kvaðst vona að ekki þyrfti að koma til
þessa. Hann sagðist ekki eiga beina aðild
að kjarasamningum lækna, það væri á
hendi fjármálaráðuneytisins en hann
ítrekaði von sína að viðunandi samningar
næðust milli lækna og samninganefndar
ríkisins.
Bæði Þorbjörn Jónsson og Sigurveig
Pétursdóttir formaður samninganefndar
LÍ sögðu að loknum aðalfundinum að ekk-
ert benti til þess að samninganefnd ríkis-
ins hefði fengið aukið umboð til samninga
við lækna og stjórn Læknafélags Íslands
því farin að velta fyrir sér mögulegum
aðgerðum ef ekki næðust samningar.
Fundarmenn hristu þó af sér áhyggj-
urnar yfir veglegum kvöldverði að
loknum fyrri degi aðalfundar og þar
voru þau Margrét Guðnadóttir og Sigur-
björn Sveinsson gerð að heiðursfélögum í
Læknafélagi Íslands.
Máþing um blandað rekstrarform
Fjölsótt málþing undir yfirskriftinni Er
blandað rekstrarform lausnin á lækna-
skortinu var haldið fyrir hádegi á föstu-
deginum. Þar höfðu framsögu
Friðfinnur Hermannsson ráðgjafi og
viðskiptafræðingur, Björn Zoëga bækl-
unarlæknir og formaður stjórnar Sjúkra-
trygginga Íslands, Ólafur Þór Gunnarsson
öldrunarlæknir á LSH og bæjarfulltrúi í
Kópavogi og Þórarinn Ingólfsson heimilis-
læknir og formaður Félags ísl. heimilis-
lækna. Málþingsstjóri var Magdalena Ás-
geirsdóttir lungnalæknir og stjórnarmaður
í LÍ.
Frumælendur tíndu til kosti og lesti
þess að læknar störfuðu sjálfstætt og voru
fleiri greinilega á þeirri skoðun að sjálf-
stæður rekstur kæmi bæði læknum og
sjúklingum til góða. Ólafur Þór var hvað
andsnúnastur sjálfstæðum rekstri og sagði
engar vísbendingar eða rannsóknir benda
til þess að árangur væri betri eða kostn-
aður minni þar sem læknisþjónusta væri
einkarekin. Ýmislegt benti fremur til hins
gagnstæða. Hann tiltók dæmi um slíkt frá
Bandaríkjunum og ýmsum löndum Evr-
ópu sem staðfestu þetta. Þórarinn Ingólfs-
son kvað reynslu Dana og Norðmanna af
einkavæðingu heilsugæslunnar mjög góða
og sagði réttast fyrir okkur að leita fyrir-
mynda þangað. Undir þetta sjónarmið
tóku síðan fleiri í umræðum.
Fram kom að með aukinni einkavæð-
ingu heilbrigðisþjónustu ykist þörfin fyrir
opinbert eftirlit með gæðum hennar sam-
hliða því sem gera þyrfti kröfur um endur-
og símenntun einyrkja í læknastéttinni.
Nokkrar breytingar urðu á stjórn LÍ
en hana skipa nú Þorbjörn Jónsson for-
maður, Orri Þór Ormarsson varaformaður,
Magnús Baldvinsson gjaldkeri, Magdalena
Ásgeirsdóttir ritari. Meðstjórnendur eru
Arna Guðmundsdóttir, Björn Gunnars-
son, Hildur Svavarsdóttir og Þórarinn
Ingólfsson. Fulltrúi FAL er Tinna Harper
Arnardóttir.
Nokkrar ályktanir voru samþykktar á
fundinum, meðal annars um að félagið
fordæmi stríðsátök og ófrið þar sem börn
og saklausir borgarar líða, um skipulags-
mál, kosningar og fyrirkomulag aðildar-
félaga LÍ, um að skipa 5 manna nefnd
sem gerir tillögur að því hvernig minnst
verður 100 ára afmælis félagsins 2018, og
stjórnin fékk leyfi aðalfundar til að sækja
um og hefja undirbúning að því að halda
aðalfund Alþjóðasamtaka lækna (WMA)
hér haustið 2018.
Samþykktar ályktanir fundarins eru á heima-
síðu Læknafélagsins www.lis.is.
Mikill þungi var í umræðum að loknum erindi Kristjáns Þórs Júlíussonar
heilbrigðisráðherra sem Þorbjörn Jónsson formaður LÍ stýrði.
Frummælendur á málþingi um blandað rekstrarform í heilbrigðisþjónustu. Frá hægri: Björn Zoëga,
Ólafur Þór Gunnarsson, Þórarinn Ingólfsson, Friðfinnur Hermannson. Páll Matthíasson forstjóri
Landspítalans stendur í pontu.
Sigurbjörn Sveinsson og Margrét Guðnadóttir nýir heiðursfélagar í Læknafélagi Íslands. Mynd Dögg Pálsdóttir.