Læknablaðið - 01.09.2014, Side 13
LÆKNAblaðið 2014/100 445
markmiði að auka þekkingu á faraldsfræði geðsjúkdóma í Banda-
ríkjunum.11 Valið var slembiúrtak í fimm borgum til að svara fjöl-
mörgum spurningum, þar á meðal varðandi notkun vímuefna og
um geðrofseinkenni. Tekin voru tvö viðtöl með árs millibili. Tien
og Anthony birtu niðurstöður sínar um tengsl kannabisnotkunar
og geðrofs í ECA-rannsókninni árið 1990.12 (tafla I) Þegar búið var
að leiðrétta fyrir truflandi þáttum á borð við skólasókn, mennt-
unarstig, hjúskaparstöðu, atvinnustöðu og geðræn einkenni við
upphaf rannsóknar, voru þeir sem notuðu kannabis daglega í
tvöfalt meiri áhættu á að hafa fengið geðrofseinkenni en þeir sem
ekki höfðu notað kannabis (95%CI: 1,3-3,1).
Nemesis-rannsóknin
Árið 2002 birtist lýðgrunduð rannsókn byggð á hollensku úrtaki
einstaklinga á aldrinum 18-64 ára en gögnunum hafði verið safnað
á árunum 1996-1999.13 Rannsóknin studdi að notkun kannabis
við upphaf rannsóknar margfaldaði líkurnar á geðrofi þrem
Tafla I. Ferilrannsóknir sem greinarhöfundar vísa til um tengsl kannabis og geðrofs.
Höfundar Ár Ferilhópur Aldur Fjöldi Mæling
svarbreytu*
Svarbreyta Truflandi þættir oR** (95% CI)
Andreasson
et al4
1987 Sænskir hermenn 18-20 ár 50.465 Innlagnir
vegna geðrofs
Geðklofi Geðræn einkenni við innritun í herinn 2,9 (1,9-4,4)
Andreasson
et al8
1989 Sænskir hermenn 18-20 ár 7695 Greining
geðklofa
Geðklofi Líkindahlutfall, ekki leiðrétt fyrir
hugsanlegum truflandi þáttum
4,1 (1,8-9,3)
Tien &
Antony12
1990 Epidemiologic
Catchment Area
(ECA)
18-49 ár 4994 DIS Einkenni geðrofs Kyn, skólasókn, menntunarstig,
hjúskaparstaða, atvinnustaða,
þunglyndi, örlyndi, víðáttufælni,
áráttuþráhyggjuröskun
2,0 (1,3-3,1)
Zammit et al9 2002 Sænskir hermenn 18-20 ár 50.087 Innlagnir vegna
geðrofs
Innlagnir vegna
geðrofs
Greindarvísitala, óeðlileg hegðun,
reykingar, utangarðsbúseta
3,1 (1,7-5,5)
Van os et al13 2002 NEMESIS 18-64 ár 4045 CIDI, SCID og
klínísk viðtöl
Einkenni geðrofs
eða greining
geðrofssjúkdóms
Aldur, kynþáttur, menntun, búseta,
hjúskaparstaða og mismunun
16,9 (3,3-86,1)
Arseneault
et al14
2002 Dunedin 26 ár 759 Greiningarviðtöl,
DSM-IV
Einkenni geðklofa og
þunglyndis. Greining
schizophreniform
disorder og
þunglyndi.
Félagsleg staða, kyn, einkenni
geðrofs við 11 ára aldur
3,1 (0,7-13,3)
Phillips et al16 2002 Hááhættuhópur
m.t.t. ættarsögu
14-28 ár 100 PACE skilmerki
bráðs geðrofs
Geðrof Ekki nefndir Ekki birt
Fergusson
et al17
2003 CHDS 18 og
21 ár
1053 Sjálfsmat (SCL-
90)
Einkenni geðrofs Fyrri geðrofseinkenni, önnur vímuefni,
einkenni annarra geðsjúkdóma samkvæmt
CIDI, félagslegar aðstæður
og fjölskylduaðstæður
1,8 (1,2-2,6)
Fergusson
et al18
2005 CHDS 25 ár 1055 Greiningarviðtöl,
DSM-IV
Einkenni geðklofa og
þunglyndis. Greining
schizophreniform
disorder og
þunglyndi.
Kyn, menntun foreldra, félagsleg staða,
neysla foreldra, geðsjúkdómar foreldra,
áföll í æsku, fyrri geðsaga, neysla annarra
vímuefna en kannabis
1,6 (1,2-2,0)
Henquet et
al19
2005 Early
developmental
stages of
pathology (EDSP)
14-24 ár 2437 M-CIDI 1 – 2 atriði af
15 á M-CIDI
spurningalista með
tilliti til geðrofs.
Aldur, kyn, félagsleg staða, búseta í borg,
áföll í æsku, einkenni geðrofs við upphaf
rannsóknar, reykingar, neysla alkóhóls og
annarra vímuefna en kannabis
1,7 (1,1-2,5)
Wiles et al22 2006 National
Psychiatric
Morbidity Survey
16-74 ár 1795 Psychosis
Screening
Questionnaire
(PSQ)
Geðrofseinkenni og/
eða oflæti
Aldur, kyn, hjúskaparstaða,
greindarvísitala, búseta, meiriháttar
atburðir í lífi, reykingar, menntun, vinna,
félagsleg staða, tekjur
1,5 (0,6-3,9)
McGrath et
al24
2010 Mater-university
Study of
Pregnancy
18-23 ár 3801 Ekki-affectíf
geðrofsgreining,
ofskynjanir,
CIDI og PDI
Ekki-affectíf
geðrofsgreining,
einkenni geðrofs
Kyn, aldur, ofskynjanir við 14 ára aldur,
geðsjúkdómar foreldra
2,1 (1,002-4,3)
Kuepper et
al20
2011 Early
developmental
stages of
pathology (EDSP)
14-24 ár 1923 M-CIDI Einkenni geðrofs Aldur, kyn, félagsleg staða, neysla annarra
vímugjafa, áföll í æsku, ekki föst búseta.
Neysla kannabisefna og geðrofseinkenni
ekki til staðar við upphaf rannsóknar
1,9 (1,1-3,1)
Manrique-
Garcia et al10
2012 Sænskir hermenn 18-20 ár 41.943 Innlagnir vegna
geðrofs
Innlagnir
vegna geðrofs,
geðrofssjúkdómar
Geðgreiningar við upphaf rannsóknar,
greindarvísitala, andfélagsleg hegðun,
búseta í borg, tóbaksreykingar
3,7 (2,3-5,8)
*DIS = Diagnostic Interview Schedule, SCID=Structured Clinical Interview for DSM-III-R / IV, PACE= Personal Assessment and Crisis Evaluation, SCL-90= Symptom Checklist 90, PDI= Peter‘s
et al Delusional Inventory, CIDI=Composite International Diagnostic Interview, M-CIDI= Munich Composite International Diagnostic Interview.
**Líkindahlutfall, oR, leiðrétt fyrir truflandi þáttum nema annað sé tekið fram.
Y F I R L I T