Ægir - 01.11.2007, Page 9
9
K Ö F U N
að út í búð, keypt köfunar-
búnað og byrjað að kafa. Ég
prófaði fyrst að kafa þegar ég
var í Vestmannaeyjum.
Frændi minn átti búnað, en
ég keypti síðan þann búnað
sem upp á vantaði og prófaði
að svamla í sjónum. Ég vil
hins vegar leggja á það
áherslu að enginn fari að kafa
án þess að fá allar nauðsyn-
legar upplýsingar og því hef
ég alltaf gefið mér góðan tíma
til þess að fylgja nýliðum eftir
og miðla af minni reynslu og
kunnáttu.“
Eyjamaður í húð og hár
Erlendur Bogason er Eyja-
maður – fæddur árið 1963.
Foreldrar hans eru Bogi Finn-
bogason, sem er látinn fyrir
rúmum áratug og Dagný Þor-
steinsdóttir, kennari, sem býr
í Eyjum. Systir Erlendar,
Guðný, sem er hjúkrunar-
fræðingur, býr einnig í Vest-
mannaeyjum. Bogi Finnboga-
son var lengi skipstjóri á skip-
um Fiskiðjunnar – Stíganda
og Ver. Erlendur Bogason, kafari.