Ægir - 01.11.2007, Page 25
25
Á 43. þingi Farmanna- og
fiskimannasambands Íslands
29. og 30. nóvember sl. er í
ályktun lýst yfir þungum
áhyggjum „af þeirri þróun sem
átt hefur sér stað í langan
tíma og farin er að hafa veru-
lega neikvæð áhrif á stöðu
skipstjórnarmanna á fiskiskip-
um.“ Ýmsar samverkandi
ástæður eru sagðar hafa leitt
til þess að starfsumhverfi
stéttarinnar hafi ekki það
aðdráttarafl sem dugi til að
laða unga efnismenn inn á
þetta svið.
„Minnkandi launamunur
milli þeirra sem stunda sjó-
mennsku og ýmissa starfs-
greina í landi er ein ástæða
þessa að færri en áður sýna
áhuga á sjómennsku. Svipt-
ingar í þróun gengis íslensku
krónunnar valda því að allan
stöðugleika vantar og óvissa
um kjör sjómanna frá einum
tíma til annars er meiri en svo
að við sé unað. Þingið krefst
þess að stjórnvöld bregðist
við þessu ófremdarástandi
með afgerandi hætti. Þingið
leggur þunga áherslu á að
grundvallar forsendan fyrir
viðgangi og velgengni sjáv-
arútvegsins felst í hæfum
skipstjórnarmönnum. Til
þess að svo megi verða þarf
að tryggja kjör sem vekja
áhuga hæfra einstaklinga,“
segir í ályktun þingsins.
Reglugerð um smáfiskaskilju
verði felld úr gildi
Fjölmargar ályktanir voru
samþykktar á þingi FFSÍ.
Meðal annars er skorað á
stjórnvöld að fella úr gildi
reglugerð um notkun smá-
fiskaskilju á botnvörpu og þar
með svokölluð skiljuhólf, en
komið hafi í ljós að skiljan
geri ekki það gagn sem af
henni var ætlast og valdi jafn-
vel meiri skaða en hún forði.
Þingið skorar á stjórnvöld
að takmarka verulega leigu-
framsal innan fiskveiðiársins
og auka þar með veiðiskyldu,
enda sé leiga á aflaheimildum
innan ársins og muni verða
megin ástæðan fyrir misferli
við launauppgjör sjómanna á
meðan hún sé heimiluð.
Skorað er á stjórnvöld að
leggja áherslu á að ná samn-
ingum við Japani um viðskipti
með hvalaafurðir þar sem slík
viðskipti séu í raun lykillinn
að sjálfbærum hvalveiðum í
framtíðinni.
Stórauka verður
hafrannsóknir!
Í ályktun þingsins um Haf-
rannsóknastofnunin kemur
fram það álit að brýna nauð-
syn beri til þess að stórauka
haf- og fiskirannsóknir á mið-
unum umhverfis landið, í
nánu samstarfi við Farmanna-
og fiskimannasamband Ís-
lands. Farið verði ofan í
saumana á þeim forsendum
sem lagðar eru til grundvallar
ráðgjafar stofnunarinnar með
það fyrir augum að gera hana
marktækari. „Það er algjör
lágmarkskrafa að tryggt sé að
rannsóknarskip stofnunarinn-
ar séu nýtt til rannsókna að
fullum krafti allt árið, en þurfi
ekki að liggja í höfn langtím-
um saman vegna skorts á
rekstrarfé. Næg eru verkefnin
sem fyrir liggja sem nauðsyn-
legt er að reyna að finna svör
við,“ segir orðrétt í álykt-
uninni.
Afskiptaleysi fjölmiðla af
sjávarútveginum
Þing Farmanna- og fiski-
mannasambandsins hefur
áhyggjur af „vaxandi afskipta-
leysi fjölmiðla hvað varðar
sjómenn og umfjöllun um
sjávarútvegsmál,“ eins og það
er orðað í ályktun. Í grein-
argerð með ályktuninni segir
að ört hafi fækkað í röðum
þeirra fréttamanna og yf-
irmanna fjölmiðla sem þekk-
ingu og áhuga hafa á málefn-
um sjávarútvegsins. „Benda
má á nýlegt dæmi um al-
mennt áhugaleysi fjölmiðla.
Þar er átt við þá sárlitlu um-
fjöllun sem verið hefur um þá
stórkostegu atburði sem átt
hafa sér stað í Grundarfirði að
undanförnu þar sem okkar
stæstu sílveiðiskip hafa mok-
að upp síldinni upp við land-
steina.“
Þingið samþykkti að beina
þeim tillmælum til stjórn-
valda að þau ásamt stjórnend-
um Landhelgisgæslu sjái til
þess að staðsetja þyrluflota
gæslunnar þannig að nota-
gildið nýtist öllum lands-
mönnum, enda verði fjármun-
ir til starfseminnar án þess að
fjárframlög til annarra starfa
Landhelgisgæslunnar verð
skert.
Þ I N G F A R M A N N A - O G F I S K I M A N N A S A M B A N D S I N S
Færri en áður sýna
áhuga á sjómennsku
- segir m.a. í samþykktum 43. þings Farmanna- og fiskimannasambandsins
Árni Bjarnason, formaður Farmanna- og fiskimannasambandsins.