Ægir - 01.11.2007, Side 40
40
Þorskeldi í sjó við strendur
landsins (mynd 1) eykst ár frá
ári og eru miklar vonir bundn-
ar við þennan atvinnuveg.
Til að þorskeldi í sjó gangi
vel er mikilvægt að umhverfis-
aðstæður séu góðar og kemur
þar margt til s.s. dýpi, skjól,
straumar, blöndun, hitastig,
aðgengi, lagnaðarís, brenni-
hveljur og fleira.
Að áhrif eldisins á um-
hverfið séu ásættanleg er ekki
síður mikilvægt til að þorsk-
eldi gangi til framtíðar. Þorsk-
eldi eins og aðrar fram-
kvæmdir hefur ákveðin áhrif
á umhverfið, sem ekki er
hægt að komast hjá. Í byrjun
eldisins þarf að skilgreina
þessi áhrif og gæta þess síðan
að áhrif haldist innan þeirra
marka.
Séu áhrif að stigmagnast,
er eldið greinilega ekki í sátt
við umhverfið og því eitthvað
að. Annað sem ástæða er til
að varast er að eldið skilji eft-
ir sig varanleg ör á landinu,
sé því hætt.
Ávinningur rannsókna á
umhverfisáhrifum er að hægt
verður að fylgjast mjög náið
með, og bregðast við, nei-
kvæðum umhverfisáhrifum
t.d. með að færa sjókvíar á
nýja staði. Með þessu móti
mun náttúran sjálf sjá um að
ná fyrra ástandi og þar með
gera fiskeldi í sjókvíum að
sjálfbæru eldi.
Hluti af rannsóknum á um-
hverfinu eru bæði mikilvægar
til að fiskeldi gangi vel og til
að takmarka umhverfisáhrif.
Rannsóknir á umhverfinu eru
því forsenda þess að vel tak-
ist til bæði hvað varðar áhrif
umhverfisins á fiskeldið og á
áhrif fiskeldisins á umhverfið.
Staðarval
Með réttri staðsetningu eld-
iskvía má komast hjá mörgum
vandamálum og því mik-
ilvægt að skilgreina staði m.t.t.
fiskeldis, bæði að staðurinn
henti til fiskeldis og að um-
hverfisáhrif á staðnum verði
ásættanleg. Til að velja réttan
stað þarf að skoða landslag á
botni, mæla strauma og lýsa
lífríkinu og meta verndargildi
og þolmörk.
Landslag á botni
Mikilvægast er að ekki séu
þröskuldar í firðinum eða
dældir í botninum þannig að
úrgangur safnist fyrir. Í slík-
um dældum geta vatnskipti
verið ónóg og því orðið súr-
efnisskortur sem hindrar nið-
urbrot efna. Almennt er mik-
ilvægt að straumur sé nægur
til að nægilegt súrefni berist
að og að súrefni blandist í
botnsetið.
Skjólmiklir staðir innst í
fjörðum geta því verið vara-
samir af þessum sökum og
mikilvægt að taka mið af sem
flestum þáttum þegar staður
er valinn.
Straumur
Rannsóknir á straumum eru
mikilvægar til að skilgreina
umhverfi sjókvía, m.a. vegna
þess að straumur flytur úr-
gangsefni. Straumi er oft lýst
með svokallaðri straumrós en
á henni sjást mismunandi
straumstefnur og styrkur yfir
ákveðið tímabil (mynd 2).
Mikilvægt er að mæla straum
bæði á aðfalli og útfalli og
ekki er víst að straumur við
yfirborð sé sami og við botn.
Út frá upplýsingum í straum-
rós er hægt að reikna meðal-
straumstefnu og styrk og
þannig fá meðaltilfærslu agna
í ákveðna átt.
Þeim mun meiri tilfærsla
agna eða efna í ákveðna átt,
þess betra er það því þá er
minni hætta á að áburðarefni
safnist fyrir og þörungablómi
verði í kvíunum eða að súr-
efnisskortur verði.
Út frá umhverfismálum er
það ekki endilega með-
alstraumstyrkur sem skiptir
mestu máli þó að mikilvægt
sé að straumur sé á svæðinu,
heldur er það mikilvægt
hversu mikill straumurinn
getur orðið um stuttan tíma
því þá rótast upp í botninum
og súrefni kemst að sem eyk-
ur hraða á niðurbroti lífrænna
efna (mynd 3).
Það skiptir einnig miklu
máli hvað mesti straumur get-
ur orðið mikill því það getur
farið að hafa neikvæð áhrif á
fiskeldið, t.d. að pokar byrji
að leggjast saman.
Lífríki á botni
Áður en fiskeldi hefst er
nauðsynlegt að meta vernd-
argildi staðarins t.d lífríkis
botnsins. Til að meta vernd-
argildi lífríkis þarf að taka tillit
til margra þátta sem eru m.a.
lífmagn eða framleiðsla, fjöl-
breytileiki, mikilvægi fyrir líf-
verur annarsstaðar og það at-
riði sem skiptir einna mestu
máli og það er hversu sérstakt
lífríkið er bæði á svæðinu og í
víðara samhengi. Sérstaða
vistkerfa er mjög mismunandi,
allt frá því að vistkerfið sé
mjög algengt, eða ríkjandi
vistkerfi á ákveðnu svæði, í
það að vera einstakt á svæð-
inu eða á landinu öllu. Sér-
stöðu er hægt að meta með
því að lýsa vistkerfum á staðl-
aðan hátt og reikna síðan
hvað er líkt og hvað er ólíkt á
milli vistkerfa. Niðurstaðan er
í sjálfu sér margvíð, en oft sett
fram í klasagreiningu, sem
Þ O R S K E L D I
Umhverfismál þorskeldis
Höfundar greinarinnar eru dr.
Þorleifur Eiríksson á Náttúrustofa
Vestfjarða. og dr. Þorleifur
Ágústsson, starfsmaður Matís á
Ísafirði og stjórnarformaður Nátt-
úrustofu Vestfjarða.
Þorleifur
Eiríksson.
Þorleifur
Ágústsson.
Mynd 1. Sjókvíar í Álftafirði.
Mynd 2. Straumrós.