Ægir

Årgang

Ægir - 01.11.2007, Side 48

Ægir - 01.11.2007, Side 48
48 Matís (Matvælarannsóknir Íslands) og norska rannsókna- fyrirtækið SINTEF hafa gert með sér samkomulag sem hefur það að markmiði að efla rannsóknir, þróun og virði í sjávarútvegi og matvælaiðnaði á Íslandi og í Noregi. Sam- komulagið gerir Matís kleift að taka þátt í rannsóknaverk- efnum í samstarfi við SINTEF og norsk fyrirtæki í fiskeldi og matvælarannsóknum. Þá mun samkomulagið auka mögu- leika Matís á því að kynna starfsemi sína á erlendum vettvangi og taka þátt í fleiri alþjóðlegum og samevrópsk- um rannsóknaverkefnum. Samkomulagið mun einnig gera íslenskum fyrirtækjum og stofnunum mögulegt að þróa samstarf með SINTEF og fyr- irtækjum og rannsóknarstofn- unum erlendis. Helstu styrkleikar SINTEF fyrir íslenskan sjávarútveg og matvælaiðnað eru þekking í sjávarútvegi, svo sem í fisk- eldi. SINTEF getur boðið fram aðstoð í rannsóknum og þró- un á þorskeldi og vinnslu- tækni í sjávarútvegi, þ.m.t. veiðum. SINTEF er í nánu samstarfi við NTNU (Tæknihá- skólann í Þrándheimi) sem eykur möguleika íslenskra menntastofnana á alþjóðlegu samstarfi. Að sama skapi getur Matís lagt að mörkum sérþekkingu til fyrirtækja í Noregi í vinnslutækni í sjávarútvegi, fiskeldi og líftæknirannsókn- um fyrir sjávarútveg. „Framtíðarsýn Matís er að efla samkeppnishæfni íslensks matvælaiðnaðar. Við teljum að með samkomulagi okkar við SINTEF hafi Matís stigið mikilvægt skref í þá átt. SIN- TEF er virt þekkingar- og rannsóknafyrirtæki á alþjóð- legum vettvangi, sem hefur afar dýrmæta þekkingu á þeim úrlausnarefnum sem snúa að Íslendingum, svo sem í fiskeldi og vinnslutækni í sjávarútvegi. SINTEF getur því stuðlað að aukinni þekk- ingu í íslenskum matvælaiðn- aði og eflt möguleika ís- lenskra fyrirtækja og háskóla á erlendum vettvangi. Þá opnar samstarfið nýja mögu- leika í rannsóknaverkefnum á vegum Evrópusambandsins. Við væntum því mikils af samstarfi okkar við SINTEF á komandi árum og gerum okkur vonir um að það komi til með að auka enn frekar virði í íslenskum matvælaiðn- aði,“ segir Sjöfn Sigurgísla- dóttir forstjóri Matís. R A N N S Ó K N I R Matís og SINTEF taka upp samstarf Sjöfn Sigurgísladóttir, forstjóri Matís, og Karl Almås forstjóri sjávarútvegs- og fisk- eldisdeildar SINTEF, handsala samninginn í Noregi. Óskum fiskvinnslufólki, sjómönnum, útgerðarmönnum og fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári! Sjómannasamband Íslands Sætúni 1, Reykjavík Stéttarfélagið Samstaða Þverbraut 1, Blönduósi Útvegsmannafélag Austfjarða Langatanga 5, Seyðisfirði Vísir – félag skipstjórnarmanna Hafnargötu 90, Keflavík Verðlagsstofa skiptaverðs Strandgötu 29, Akureyri Verkalýðs- og sjómannafélag Bolungarvíkur Hafnargötu 37, Bolungarvík Verkalýðsfélagið Vaka Suðurgötu 10, Siglufirði Verkalýðsfélag Snæfellsbæjar Ólafsbraut 44, Ólafsvík Verkalýðsfélag Þórshafnar Langanesvegi 2, Þórshöfn Vélar og skip ehf. Hólmaslóð 4, Reykjavík Véltak ehf. Hvaleyrarbraut 3, Hafnarfirði Þorbjörn-Fiskanes hf. Hafnargötu 12, Grindavík

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.