Ægir - 01.11.2007, Síða 58
58
ársveit og Langá á Mýrum. Þá
var Óskar leigutaki Rugludals-
ár fyrir nokkrum árum en það
veiðisvæði gengur í daglegu
tali undir nafninu Blanda IV.
Um er að ræða efsta svæðið
fyrir neðan virkjunina en þar
er áin bergvatnsá þar til að
Blöndulón fer á yfirfall.
Töluvert um smálax í
síldaraflanum
Óskar er glöggur á lífríki
lands og sjávar líkt og margir
sjómenn og veiðimenn og
hann segir það sitt mat að
það standi ekki steinn yfir
steini í ráðgjöf fiskifræðinga
varðandi leyfilegt heild-
armagn hverju sinni. Hann
segir gríðarlega mörgum
spurningum vera ósvarað
hvað varðar lífríkið í hafinu
og þær breytingar sem orðið
hafa á síðustu áratugum.
,,Ég t.d. hef oft velt fyrir
mér samspili rækjuveiða og
laxgengdar í ár landsins. Ég
tók eftir því þegar pabbi var
með síldarsöltunarstöð hér
við Herjólfsgötuna í Hafn-
arfirði að það var oft mikið af
smálaxi með síldinni sem
bátarnir voru þá að veiða í
nóvember og desember á
svæðinu út af Snæfellsjökli og
í hinu svokallaða Jökuldjúpi.
Þessir laxar voru litlu stærri
en síldin en þetta voru greini-
lega laxar sem gengið höfðu
til sjávar þá um vorið. Miðað
við það hve umfang togveiða
er orðið mikið má vel ímynda
sér að það lendi töluvert
magn af laxaseiðum og smá-
laxi í trollunum og þótt þessi
fiskur skili sér ekki á land þá
er hann dauðadæmdur þar
sem laxinn þolir ekki að
smjúga möskvana eða það
hnjask sem felst í því að
velkjast um með öðrum fiski í
trollinu. Á tímabili minnkaði
laxveiðin í ám landsins til
muna. Það gerðist á sama
tíma og mestur uppgangur
var í rækjuveiðum fyrir norð-
an land. Nú þegar rækjuveið-
arnar hafa dregist saman í
nánast ekki neitt þá virðist
laxinn vera að skila sér til
baka. Mér vitanlega hefur
enginn kannað hvort sam-
hengi er þarna á milli.”
Óskar segist aldrei hafa
skilið kenningar fiskifræðinga
um að hægt sé að geyma fisk
í sjónum eins og ráðgjöf víða
gengur út á.
,,Við getum tekið úthafs-
rækjuveiðina sem dæmi. Þeg-
ar þær veiðar hófust fyrst af
einhverri alvöru, með veiðum
Snorra Snorrasonar á Dal-
borginni frá Dalvík, þá var
veiðin léleg til að byrja með.
Miðað við kenningar fiski-
fræðinga um að hægt sé að
geyma fisk, og þá væntanlega
rækju líka, í sjónum þá hefði
Dalborgin átt að standa föst í
rækjumergðinni. Þessi stofn
hafði ekki verið nýttur frá því
að land byggðist og örugg-
lega ekki fyrir þann tíma. Nú
sjá menn einnig að ýsan er á
bullandi uppleið. Það stafar
ekki af því að hún hafi verið
ofvernduð, heldur virðast
vera kjörskilyrði fyrir hræætur
eins og ýsuna nú um stundir.
Getur það stafað af því hve
miklu af fiski hefur verið hent
í sjóinn og hve brottkastið er
orðið umfangsmikið? Ég skil
heldur ekki af hverju er verið
að kvótasetja verðlausan fisk
eins og ufsa til þess eins að
hann geti haldið áfram að
hafa æti af þorsknum. Ástand
þorsksins er ekki gott. Fisk-
urinn er horaður og ég dreg í
efa að mikið af þorskinum
hér við land nái að þroska
hrogn og svil vegna þess hve
hann er illa á sig kominn. Ef
ég fengi einhverju ráðið um
þessi mál þá myndi ég láta
byggja verksmiðjur sem fram-
leitt gætu stein- og næring-
arefni sem hægt væri að nota
til að bera á hafið. Hinn mikli
fjöldi virkjana með tilheyrandi
uppistöðulónum hefur valdið
því að þessi mikilvægu efni
skila sér nú í miklu minna
mæli til sjávar en áður var. Ég
var eitt sinn varaþingmaður
Borgaraflokksins og lagði þá
til við Júlíus Sólnes að hann
beitti sér fyrir því að gerð yrði
tilraun til að hvetja menn til
að blanda saman þorskhrogn-
um og –sviljum um borð í
fiskiskipum úti á sjó og hella
blöndunni í sjóinn. Ég vildi
að sú tilraun yrði gerð í Hval-
firði þannig að meta mætti
hvort þorskgengd ykist í kjöl-
farið. Svarið, sem fékkst frá
ráðamönnum, var að þetta
væri ekki hægt. Bjarni Sæ-
mundsson fiskifræðingur var
þessu ekki sammála því hann
sagði í bók sinni á sínum tíma
að besta ,,hrygningin” færi
fram um borð í togurunum
þegar ágjöf væri og hrogn og
svil blönduðust saman. Þetta
held ég að menn hefðu gott
af því að hugleiða í dag,” seg-
ir Óskar Hrafn Ólafsson.
Viðtal: Eiríkur St. Eiríksson
Myndir: Ýmsir
Óskum fiskvinnslufólki, sjómönnum, útgerðarmönnum og
fjölskyldum þeirra gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári!
V I Ð T A L
Hafnarfjarðarhöfn
Hafnarsjóður
Bolungarvíkur
Hafnarsjóður
Þorlákshafnar
Dalvíkurbyggð
– hafnarsjóður
Hafnasamlag Norðurlands
Hafnir Ísafjarðarbæjar
Hafnarsjóður
Fjarðabyggðar
Hafnarsjóður Skagafjarðar
Kópavogshöfn
Faxaflóahafnir
Sandgerðishöfn
Seyðisfjarðarhöfn
Tálknafjarðarhöfn
Vestmannaeyjahöfn
Vopnafjarðarhöfn
Langaneshafnir
Reykjaneshöfn