Tímarit Máls og menningar - 01.04.1940, Blaðsíða 9
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
3
okkar fyrir það. Enn sem komið er, verður ekki bent á mik-
inn árangur af þessum umrœðum. Hér var haldinn Vestmanna-
dagur síðastliðið sumar og stofnað félag 1. desember, sem á
að starfa í sambandi við Þjóðræknisfélagið í Winnipeg. Það hafa
verið sögð mörg falleg orð um landa vestra og þeim verið send-
ar margar fallegar orður. Orðin eru vitanlega til ails fyrst, og
hvað orðurnar snertir, virða landar vestra sjálfsagt viljann fyrir
verkið. Við skulum vona, að fleira og meira fari á eftir. Því
miður hafa landar okkar í Vesturheimi nýlega misst aðalfor-
vigismann sinn í þjóðræknismálunum, dr. Rögnvald Pétursson,
og verður það skarð vandfyllt. En það kom fallega fram í blöð-
unum hér heima við andlát hans, að íslendingar finna, hversu
mikið og óeigingjarnt starf hann hafði unnið fyrir þjóðlega
menningu vestan hafs og sambandið við gamla landið.
Fyrir rúmum þremur árum fór formaður Máls og menningar,
Kristinn E. Andrésson, þess á leit við dr. Sigurð Nordal, að
hann gerði úrval úr Andvökum Stephans G. Stephanssonar, sem
gefið yrði út sem félagsbók. Sigurði var kunnugt um það, að
dr. Rögnvaldur hafði lengi leitazt við að fá prentað VI. bindið
af Andvökum, síðustu kvæði Stephans, en engan kostnaðarmann
getað fengið, og auk þess safnað hréfum Stephans, sem hlutu
að vera stórmerk heimild um æfi lians. Sigurður setti það þvi
að skilyrði við Kristin, að síðasta bindið af Andvökum yrði
prentað, áður en úrvalið væri gert, og benti á nauðsyn þess, að
bréfin yrðu gefin út, því að án þess væri erfitt að skrifa um
Stephan til neinnar hlítar. Kristinn tók að sér að láta bóka-
verzlunina Heimskringlu gefa kvæðin út. Og í beinu sambandi
við þetta var það sem dr. Þorkell Jóhannesson gerðist for-
göngumaður að því, að Þjóðvinafélagið gæfi bréfin út. Félagið
hefur nú í bili, undir hinni nýju stjórn, stöðvað útgáfu bréf-
anna, en vonandi verður henni haldið áfram á næstu árum.
Samvinnan milli dr. Rögnvalds og Máls og menningar tókst
ágætlega. Og það er varla of mikið sagt, að fátt hafi orðið
honum til meiri gleði siðustu árin, sem liann lifði, en að sjá
þessu mikla áhugamáli sínu borgið: að koma verkum þessa
stórskálds og einkavinar sins á prent og i almennings hendur.
Það virðist ekkert ágreiningsmál vera meðal þeirra manna,
sem islenzkum bókmenntum unna, að úrvalið úr Andvökum
og ritgerð Sigurðar Nordals, sem því fylgir, liafi tekizt vel.
Stjórn Máls og menningar hefur fengið meira þakklæti fyrir
þessa bók en nokkra aðra, sem félagið hefur gefið út, og það
jafnt frá mönnum af öllum flokkum og stéttum. Kvæði Step-
hans, sem áður hafa verið i fremur fárra manna höndum og