Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1940, Blaðsíða 38

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1940, Blaðsíða 38
32 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR heim við hugmyndir okkar um skáld. Afstaða okkar til hans hafði gerhreytzt við sögubrotin, sem við heyrð- um af honum og hið algerða andsvarsleysi hans við árásum okkar. Hann hafði setzt að í litlum skúr niðri í fjöru, sem einu sinni hafði verið verbúð, en var ekki lengur not- aður. Hann tindi spýtnarusl i fjörunni, har það í fang- inu inn í skúrinn og sauð við það þorskhausa og ann- að, sem honum var gefið, eða réttara sagt fleygt var í hann, þegar hann stóð þegjandi hjá þeim, sem voru að gera að aflanum. Enginn hugsaði um hann eða gerði sér rellu út af því, hvort hann skrymti eða lognaðist út af til fulls í sljóleikaástandi sínu, en menn ömuð- ust ekki heldur við honum og létu hann liafa soðn- ingu, þegar liann var viðstaddur, þar sem gert var að fiski. Stöku sinnum kallaði einhver húsfreyjan hann inn í eldhús og gaf honum kaffi; að öðru leyti var hann látinn afskiptalaus. Við stóðum oft á gægjum fyrir framan skúrinn, en sáum aldrei hvað Manni aðhafðist þar inni, þvi að hann lokaði vandlega djrrunum og hafði hengt striga- pjötlu fyrir gluggakytruna, og við reyndum aldrei að hrjótast inn til hans. Yfirleitt hættum við öllum ofsókn- um á hendur honum og tókum hann miklu fremur undir okkar vernd. Við höfðum ánægju af því, að hann skyldi vera þarna og mundum furðu oft eftir tilveru lians mitt í annríki leika okkar. Hann var iðulega um- talsefni okkar, og það var engin hætta á, að ályktan- ir okkar um hann væru hversdaglegar. Hugmyndaflug okkar sá allt annað en skítuga og sljóa töturhypju í þessum gesti. Hann var leyndarmálið, gátan, draum- urinn um hið dularfulla. Einu sinni söfnuðum við miklu af spýtum og færð- um Manna þær. Við höfðum ekki fengið afsalsbréf fyrir þeim öllum, en það þyngdi ekki samvizku okkar. Undir þessari hjálpfýsi bjó kannski dálítil forvitni og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.