Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1940, Blaðsíða 89

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1940, Blaðsíða 89
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR 83 inga, náttúru landsins, sögu þjóðarinnar, menningu hennar, bók- menntir og listir. ÞaS ár var tekin ákvörðun um útgáfu þess. Á- hrifamesti menntamaður þjóðarinnar, sem lengi hafði notið mesta trausts hennar, gengur i lið með Máli og menningu, verður rit- stjóri þessa verks. Og með Sigurði Nordal taka til starfa beztu vísindamenn og rithöfundar þjóðarinnar, til þess að undirbúa útgáfu, sem verða mun hverjum íslendingi ómetanlegt verðmæti. Og þó er hið veigamesta ótalið: viðtökur þær, sem hugmynd þessa verks fær hjá félagsmönnum Máls og menningar, hjá ís- lenzku þjóðinni. Þessi útgáfuhugmynd, eins og Mál og menning sjálft, var reist á dæmafárri bjartsýni og bjargföstu trausti á menningaráhuga íslendinga. Sú bjartsýni hefur ekki orðið sér til neinnar háðungar, það traust hefur ekki i neinu brugðizt. Arfur íslendinga var frá fyrsta degi sigur þess trausts, sem stjórn- endur Máls og menningar bera til islenzku þjóðarinnar. Þennan sigur er því meira að meta, sem jafnskjótt og útgáfuhugmyndin var kunngerð, var gerð heiftúðug árás á Mál og menningu, sér- staklega af einum valdamanni ríkisins, Jónasi Jónssyni, og engin vopn til spöruð, að ófrægja félagið. Hefur árangur þeirrar her- ferðar komið þannig fram í reyndinni, að yfir 500 hafa bætzt við i Mál og menningu, en 5 menn hafa sagt sig úr félaginu. Annars hafa félagsmenn Máls og menningar allir sem einn hald- ið tryggð við félagið, engan óhróður látið hagga sér. Þeir hafa þekkt félag sitt, stefnu þess, anda þess, gildi þess, betur en svo. Við hina fyrstu atrennu hefur siður en svo tekizt að hnekkja hið minnsta Máli og menningu. Þjóðin hefur hins vegar skipað sér þar enn þéttar, félagið hefur orðið henni ennþá dýrmætara. Miklu meiri athygli en áður hefur vaknað fyrir menningarstarfi þess. Hverjum frjálshuga manni er orðið það ljóst, að Mál og menning er sterkasta vigi menningarinnar i landinu. Öfundarmenn Máls og menningar hafa fljótt komizt að raun um, að það stoða ekki orðin ein til þess að kollvarpa félaginu. Það hafa lika mörg önnur ráð verið upptekin, reynt á margan hátt að spilla fyrir viðskiptum þess og verður sjálfsagt betur gert. En einnig þar hefur komið i ljós, að Mál og menning á marga forsvarsmenn og trausta vini. Nú hefur Jónas Jónsson enn hafið sókn mikla, látið steypa saman Þjóðvinafélaginu og Menningarsjóði, og vill nú óðfús gefa þjóðinni sem mest af bók- um, sér nú allt í einu, að hvert heimili sé bókalaust, gerir Máli og menningu stór yfirboð, stælir í einu og öllu aðferðir okk- ar, og hefur áreiðanlega ekki nema eitt takmark með útgáfu sinni: að reyna að ráða niðurlögum Máls og menningar. Að baki útgáfunni er styrkur úr ríkissjóði, sennilega eftir þörfum. Bæk- 6*
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.