Tímarit Máls og menningar - 01.05.1942, Blaðsíða 102
9G
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
uS, a'ð hún þolir bæði lof og last. Ég vil svo að iokum þakka
Menntamálaráði fyrir að liafa gefið 12 þúsundum af heimilum
landsius tækifæri til að eignast þessa bók. Timarit Máls og menn-
ingar hefur að vísu ekki lagt það í vana sinn að hrósa bókum
Menningarsjóðs, en í þessu efni eiga við orð gáfaðs íslendings:
„Sama er, hvaðan gott kemur, ef gott kemur.“
Svcrrir Kristjánsson.
Mál og menning.
ÚTGÁFAN 1941. Þrátt fyrir alla dýrtið tefldi Mál og menn-
ing djarft i bókaútgáfu sinni síðastliðið ár, og vildi sýna félags-
mönnum, að um leið og árgjaldið hækkaði, fengju þeir meira
í aðra hönd. Félagið gaf út fjórar bækur, einni fleira en 1940:
Vopnin kvödd (23 arkir), Afa og ömmu (8 arkir), Tímarit Máls
og menningar (19 arkir) og Rit II, eftir Jóhann Sigurjónsson
(18 arkir), samtals 68 arkir, og hefur félagið aðeins eitt ár áð-
ur gefið út hærri arkatölu. (Árið 1937 var útgáfan 37% örk, 1938
55%, 1939 77% örk og 1940 53 arkir). Það reyndist líka svo, að
við vorum fulldjarfir, þvi að dálítill halli varð á útgáfunni, eða
um 1600 kr. En félagsmenn geta glögglega séð af reikningun-
um, seiu birtir eru hér á eftir, að vel hefur tekizt að spara sjálf-
an reksturskostnaðinn, því að hann er ekkert hærri en 1940.
Við spöruðum jafnvel svo auglýsingar, að félagsmenn kvörtuðu
oft um, að þeir heyrðu of sjaldan nokkuð frá félaginu. Öll hækk-
un félagsgjaldanna hefur runnið til sjálfrar útgáfunnar, farið í
pappírskaup og kostnað við prentun, heftingu og bókband. Þess-
ir útgjaldaliðir ásamt ritlaunum (sem hafa aðeins verið 100—120
kr. á örk) nema yfir 75 þús. kr., og þegar kostnaður á bókbandi
er dreginn frá (félagsmenn greiða hann sérstaklega), kemur i
ljós, að hver örk af heftri bók kostar nærri eitt þús. kr. (en þegar
Mál og menning var stofnuð, áætluðum við kostnaðinn 300 kr.
á örk samkvæmt verðlagi þá, reyndar í lægra upplagi, og lof-
uðum að gefa út 60 arkir á ári) og af þeirri upphæð er um helm-
ingurinn, 500 kr., pappírsverð.
BÓKABÚÐ MÁLS OG MENNINGAR. Á síðastliðnu ári ákvað
Heimskringla h.f. að liætta bókaverzlun, en tengja útgáfurekstur
t