Tímarit Máls og menningar - 01.12.1942, Qupperneq 3
TIMARIT
MÁLS OG MENNINGAR
RITSTJÓRI: KRISTINN E. ANDRÉSSON
1942 • DESEMBER • 3. HEFTI
FYRSTA ÞING ÍSLENZKRA LISTAMANNA, sem haldið var i
nóvember síðastl., vakli þjóðarathygli og fögnuð allra, er listum
unna. Þingið stóð i eina viku. Sveinn Björnsson ríkisstjóri var
verndari þess, en forseti Gunnar Gunnarsson. Rithöfundar fluttu
erindi og lásu upp úr verkum sínum i útvarpinu og í hátíðasal Há-
skólans. íslenzk tónlistarverk voru flutt. í sambandi við þingið var
málverkasýning, reyndar mjög fábrotin vegna húsnæðisþrengsla.
og leiksýning var í Iðnó á Dansinuru i Hruna. Flesta daga þings-
ins voru umræðufupdir um málefni listamanna, og þinginu lauk
með dansskemmtun á Hótel Borg. Þingið gaf allgóða hugmynd
um viðfangsefni listamanna og hverju þeir áorka, hver í sinni
grein, eins um skilning þeirra á sjálfum sér og hlutverki sínu.
Myndlistin gat þó á engait hátt notið sín, því að aðeins fá verk
voru til sýnis. Svipað er reyndar um leiklistina, að aldrei sésl
hvað hún má sín, nteðan sýningar verður að hakla í, húsakynn-
um Iðnó, en þegar litið er á allar aðstæður, tókst leiksýningin
samt furðu vel, hafa sjaldan sézt hér betur samæfðir kraftar
leikenda, og var jafnvel undrunarvert, hvað sviðið i Iðnó gaf
látið í té.
Listamenn hafa ekki haft orð á sér fyrir góð sam-
Samtök tök. Þeint er sjálfunt tamt að gæla við þá hugmynd,
listamanna að þeir hljóti samkvæmt eðli sinu að vera einrænir
taka og ófélagslyndir. Þessi skoðun kom einnig fram á
forystuna. listamannaþinginu. En vitanlega komast listamenn
ekki hjá þvi fremur en aðrir starfshópar þjóðfélags-
ins, að hafa samtölc um áhugamál sín. Það er fyrst og fremst
þeirra skylda að sjá til þess, að málstaður listarinnar sé ekki
fyrir borð borinn, og hverjir ættu að kunna betur að meta gildi
hennar en þeir, enda að sjálfsögðu ekki annað en gömul firra
eða dulbúið yfirlæti, að listamenn séu ófélagslyndari en aðrir
menn. Samtök þeirra reynast á engan hátt ótraustari. Þau eru
aðeins ung hér á landi, fá ár síðan Bandalag islenzkra listamanna
13'