Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1942, Síða 21

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1942, Síða 21
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR 203 uni þjóðfélagsins, séu jafnvel yfir þær hafnir, verk þeirra sén ekki árangur starfs og tíma, heldur innblástur eða náðargjöf. Menn nieð slíkar hugmyndir fara vitanlega allir hjá sér, ef mælt er til þeirra á jarðneska visu: um skipulagningu lista- starfsemi, samstarf listamanna, samstarf við aðrar stéttir, skyld- ur við þjóðfélag, baráttu fyrir réttindum alþýðu eða launakröf- ur til þjóðfélagsins fyrir hönd þeirra sjálf.ra. Þessir menn dýrka einangrun, þeirra draumur er að liggja úti í sólskini, góna upp í himininn og biða eftir því, að andinn komi yfir þá, og þeir myndu krossa sig, ef minnzt væri á, að rikið gæfi þeim verk- efni. Það er að sjálfsögðu mjög erfitt fyrir þjóðfélagið að koma til móts við skáld og listamenn af þessu tagi, en þeir liafa hins vegar löngum verið eftirlæti þess. Engin „hætta“ hefur nokkru sinni stafað af þeim, enda hafa þeir sjaldan verið miklir lista- menn. Þeir liafa i liæsta lagi verið skrautfjaðrir og dýrkaðir vegna þess, og verk þeirra tómstundagaman. En hugsunarháttur listamanna er að gerbreytast. Þeir lifa ekki lengur uppi í skýj- unuin eins og áður, heldur sjá og skilja, að þeir eiga heima á jörðinni, í ákveðnu þjóðfélagi á ákveðnum tíma, tengdir stund og stað, í samfélagi við aðra menn, og eru ekki miðlar ein- hverra radda utan úr geimnum, heldur tjáendur lífsskoðana samtíðar sinnar, nýrra hugmynda, nýr.ra sjónarmiða og nýs lífs. Það er gleðiefni að heyra af vörum skálds jafn yfirlætislaus orð og jafn sönn eins og Gunnars Gunnarssonar á listamanna- þinginu: „Hlutverk listamannsins í þjóðfélaginu er nákvæmlega sama og livers annars þegns“ og „listamenn íslanils eru verka- menn, vinnulýður." Hér er kveðið upp úr með það, að lista- menn séu á sinu sviði starfsmenn þjóðfélagsins eins og hverjir aðrir þegnar. Um leið og þetta sjónarmið er ríkjandi, en hvorki eittlivert ofmat né vanmat á verðleikum listamanna, er stund þjóðfélagsins komin að vinna fyrir listirnar, að þróun þeirra og eflingu. Þegar listamennirnir skipa sér við hlið annarra slarfsmanna, er þjóðfélagsins að meta störf þeirra til fullra launa og þvi rikulegri launa sem það er viðurkennt og sannan- legt, að störf hinna beztu skálda og listamanna eru þjóðinni ómetanlegri og varanlegri en annarra þegna. Allt er hreyfing og breyting, heimurinn er á hverri slundu nýr, atburðarásin streymir viðnámslaust, og í atburðastraumn- um er maðurinn sjálfur. Með hverri hreyfingu breytast aðstæð- ur, verða til ný viðhorf, og vilji maðurinn vera drottnari og herra hverrar stundar, sem líður, verður hann að skynja lög- mál breytinganna og hin óaflátanlega nýju viðhorf. Að lifa og starfa er að skynja hreyfingu athurðanna umhverfis sig og af- 14*
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.