Tímarit Máls og menningar - 01.12.1942, Page 24
206 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
Er við metum gildi islenzkrar listar eins
og vert er, og sérstaklega er vi'ð skil.j-
um, að hún er landvörn okkar og sjálf-
stæðismál, ætti okkur að vera það kapps-
mál og þjóðarmetnaður, að styðja hana
og örva á alla lund. Væri þess þá fyrst
að vænta af Alþingi og rikisstjórn, að
þau veittu örlátri hendi fjárframlag til listamanna og listastarf-
semi í landinu, því að óhjákvæmilegt skilyrði til þess, að list
geti blómgazt verulega hér á landi, er, að veitt sé til hennar
miklu meira fjármagn tiltölulega en í öðrum löndum, því að
hún á hér sökum fólksfæðar miklu erfiðar uppdráttar, en fjár-
magn hefur auk þess hjá hverri þjóð verið skilyrði hlómlegrar
listastarfsemi. Nú vill líka svo til, að íslenzka ríkið ætti að
standa vel að vígi að styðja listir rikulega. Við höfum t. d. eng-
in hernaðarútgjöld, en flestar aðrar þjóðir verða að kosta lier
tii landvarna og verja stórfé til vígbúnaðar, sumar þeirra jafn-
vel 50—75% af öllum þjóðartekjunum. En hver eru útgjöld okk-
ar, sem svo mikið er látið af, til lista og bókmennta í hlulfalli
við þjóðartekjur? Segi og skrifa 3%o — ekki 3%, eða 3 kr. af
hverjum hundrað, heldur þrjár kr. af hverjum þúsuríd. Það er
öll rausnin. Menn skulu fá að sjá þessar uppliæðir sundurlið-
aðar, eins og þær cru nú i fjárlagafrumvarpi fyrir árið 1943:
Styrkur til skálda, rithöfunda, visindamanna og lista-
manna, samkv. ákvörðun Menntamálaráðs .......... lcr. 100.000.00
Til Leikfélags Reykjavíkur ........................ — 12.000.00
Til leiklistarskóla Lárusar Pálssonar og Soffíu Guð-
laugsdóttur, 1200 kr. til hvors ................ — 2.400.00
Til Leikfélags Akureyrar ........................... — 1.500.00
Til Leikfélags ísafjarðar .......................... — 800.00
Til Tónlistarskólans ............................... — 6.500.00
Til hljómsveitar Reykjavíkur ....................... — 2.000.00
Til Hallgríms Helgasonar, til útgáfu á þjóðlagasafni — 2.500.00
Til sambands islenzkra karlakóra ................... — 6.000.00
Til landssambands blandaðra kóra og kvenkóra .. — 2.500.00
Til Einars Jónssonar og listasafns hans .............— 7.500.00
Til Randalags íslenzkra listamanna ................. — 1.200.00
Samtals kr. 144.900.00
Heildartekjur ríkissjóðs eru hins vegar áætlaðar kr. 48.258.440.00,
og gerir þetta því rétt 3/r af upphæðinni, eins og að framan
Fyrir 5% af þjóðar-
tekjunum er auðvelt
að skapa íslenzkum
listum og bókmenntum
góð og lífvænleg
skilyrði.