Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1942, Side 43

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1942, Side 43
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR 225 þar, sem liann leggst dýpst, hefur liann oftast tök á að klæða hugsanir sínar alþýðlegum húningi, setja þær fram í næstum áþreifanlegu formi. List hans, sem stund- um virðist eins og mótuð í skyndingu, leiftrar í tíðum þáttaskiptum, þar sem sjónarsviðið tekur snöggum hreyt- ingum líkt og í kvikmynd og hver atburður er tákn- rænn. Hann hefur náð fullkomnum tökum á þessu sér- staka skáldsöguformi sínu, ritar þægilega og glæsilega árejmslulítið og færir sér tilgerðarlaust og frjálsmann- lega í nyt söguefni og sjálfsreynslu. Skáldsaga hans verður eins konar annáll athurðanna, þar sem reyndar- þráðurinn, veruleikalögmálið, verður aldrei þjakandi erfiði eða sálarmyrðandi skylda. f þessu er fólginn sig- ur skáldgáfu hans á efninu. Honum er lagin iþrótt æfin- týra- og sagnaþulsins, sem öllu fær breytt. Laxness er aðeins 40 ára, en rit hans eru þegar mikil að vöxtum. Auk allmargra skáldsagna hefur liann sam- ið kvæði, ritgerðir, smásögur og ferðasögur. Hann byrj- aði óvenju snemma, var hráðþroska 17 ára piltur, er fyrsta bók hans kom út, ástarsagan „Barn náttúrunnar“. Síðan kynntist hann Hamsun, sem áhrifadrýgstur hef- ur reynzt allra ættfeðra hans í heimi hókmenntanna, en sökkti sér því næst niður í umhugsun um trúmál og gerðist þá kaþólskur. Þessara áhrifa gætir að nokkru í smásagnasafni eftir hann og að nokkru í skáldsögu, er hann ritaði i frönsku klaustri. Togstreitan milli raun- hyggju og táknræns skáldskapar er þegar hafin í bók þeirri, sem talin er mikilfenglegust allra æskurita hans, „Vefaranum mikla frá Kasmír“, þar sem hann notar söguna um vefarann Malek og koffortið fljúgandi úr „Þúsund og einni nótt“ sem hliðstæðu, er liann lýsir íslenzku skáldi og heimspekingi, sem allt leikur í lyndi, hefur veitzt auður og frægð, en innri maður hans er tviskiptur. Þar togast á jarðneskir hlutir og þeir, sem ekki eru af þessum heimi, ytri upphefð og sú trú, sem allt slíkt gerir að hégóma. Bókin túlkar að nokkru bar-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.