Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1942, Qupperneq 49

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1942, Qupperneq 49
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR 231 indi og fagrar listir, þá var hann sendur til Grænlands að beykja tunnur. Þegar dándismenn unnu þrekvirki i almennri meðal- hegðun: settu bú saman, gerðu sér unaðssælt heimili með fríðri konu og þægum börnum, þá seldi hann sina konu fyrir hund. Þegar aðrir hófust á tinda frægðarinnar og hlutu embætti, nafn- bætur og tignarmerki, þá var hann dæmdur i tuttugu og sjö vand- arhögg. Höfðingjar þjóðarinnar, stórskáldin og forverðir andans sönnuðu með lærdómi og málsnilld, að hann væri leirskáld og fífl. Þegar mætir menn fengu merkilegt andlát í skauti fjöl- skyldunnar, og elskandi hendur veittu þeiin síðasta umbúnað. þá varð hann hungurmorða í köldu úthýsi og sveitarstjórnin lét keyra hræið burt. En andi hins fátæka alþýðuskálds, sem hinir lærðu höfðu að eingu og stórskáldin fyrirlitu, hefur búið með íslenzku þjóðinni í þúsund ár, í fastilju afdalakotsins, i snauðri verbúð undir Jökli, á hákarlaskipi fyrir Norðurlandi, eft- ir að öll mið voru týnd í miðsvetrarsvartnætti Dumbshafsins, í tötrum flakkarans, sem hlundar við hlið fjallasauðarins í víði- kjörrum heiðanna, i hlekkjum þrælkunarfangans á Brimarhólmi; þessi andi var kvikan í lifi þjóðarinnar gegnum alla söguna, og það er hann, sem hefur gert þetta fátæka eyland hér vestur í hafinu að stórþjóð og heimsveldi og ósigrandi jaðri heimsins.“ Það er þessi andi alþýðuskáldskaparins, sem einnig gagntekur Ólaf Kárason og veitir honum þrek í and- streymi og andstyggð örbirgðarinnar. Hann hefur séð Ijós fegurðarinnar og lieyrt hljóm eilífðarinnar í rökkri og þjáningum hversdagsins. Þegar hann er barn að aldri, sendir móðir hans hann hurt frá sér í poka á sveitina. Hann lendir á hæ, þar sem liann er látinn þræla við vatnsburð veturinn út, og dvelst hjá fólki, sem hatast við skáldskap og bóklestur. Hann er varnarlaus gagn- vart kvalalosta bræðranna, sem láta skammirnar dynja á honum, og vandlætingarsýki kvenfólksins. Stúlka tek- ur málstað hans gagnvart hinum börnunum og hrosir við honum á árbakkanum, hlær sig inn í hjarta hans og kemur honum til þess að yrkja hamingjuþrungnar ástavísur, þar til honum skilzt, að hún hefur ekki meint neitt með þessu. Hann verður veikur af ofreynslu og lig'gur rúmfastur árum saman, horfir áfjátt á sólskins- hlettinn á súðinni og fær að lesa dásamlega, gamla
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.