Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1942, Síða 89

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1942, Síða 89
Umsagnir um bækur: ÖrnArnarson: Illgresi. Önnur útgáfa. M.F.A. Reykja- vik, 1942. 208 + xxiii bls. Magnús Stefánsson hafti í mörg ár, eftir að hann átti þvi nær allt efnið í þetta kvæðasafn tilbúið, varizt ásókn útgef- cnda og áeggjan vina sinna og tregðazt við að láta bókina frá sér fara. En um þessa nýju útgáfu Illgresis hefur tekizt svo giftusamlega sem forsjón hefði verið þar að verki. Magnúsi ent- ist aklur til þess að ganga frá henni, eins og hann ætlaði sér að haf'a hana, — ráða við sig, hver kvæði hann vildi birta, leggja síðustu hönd á þau, raða þeim og fylgjast með prentun þeirra. En útkoma bókarinnar dróst fram yfir fráfall hans. Að visu mun mörgum finnast raunalegt, að hann skyldi ekki lifa það að vita, hversu vel henni yrði fagnað. Hitt er þó trúlegra. að sú ánægja hefði orðið blandin. Honum hefði að sumu leyti fundizt lifið tómlegra, er hann hafði sleppt kvæðunum frá sér, „selt sál sína“, eins og hann komst að orði, þegar hann liafði sent fyrstu kvæði sín til birtingar í Eimreiðinni (1920). Og að tvennu leyti hefur þessi útgáfa Illgresis grætt á þvi, að hún kom ekki fyrr en þetta. Eftir lát höfundarins var afráðið að auka við fullprentuðu bókina hálfri annarri örk. í þeim bókar- auka er síðasta kvæði Arnar Arnarsonar, Þá var ég ungur, sem þegar er þjóðkunnugt og meðal allra beztu kvæða hans. Það orti hann vikurnar áður en hann fór á sjúkrahúsið og lagðist þar banaleguna. Er eins og hann hafi ekki getað lagzt til hinzlu hvildar, fyrr en hann hafði lokið þvi. Og enn er i bókarauk- anum prýðileg ritgerð um Magnús Stefánsson eftir dr. Bjarna Aðalbjarnarson, og mundi bún ekki hafa fylgt Illgresi, ef það hefði komið út að skáldinu lifandi. Ritgerð þessi er ekki nema 16 blaðsíður, reyndar með smáletri, en hún er ótrúlega efnis- mikil og riluð af góðri þekkingu og næmum skilningi á örlög- um og eðlisfari Magnúsar. Þótt hún fjalli lítt um ljóðin bein- línis, mun hún verða lesendum þeirra mikils virði. Kvæði Arnar Arnarsonar virðast reyndar svo Ijós, að þau þurfi engra skýr- inga við. En enginn mun lesa þau sér að fullu gagni, hvorki það, sem þar er kveðið né hálfkveðið, nema hann viti líka nokk- ur deili á Magnúsi Stefánssyni. Áhöld eru um, hvor þeirra var
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.