Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1942, Page 90

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1942, Page 90
272 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR merkilegri. Magnúsar verður að vísu minnzt vegna kvæða Arnar. En þeim, sem þekktu Magnús, mun verða hann engu óminnis- stæðari en beztu kvæði hans, og svo mun þvi fleirum fara sem honum verður rækilegar lýst. Mér er nær að halda, að fáar bækur hafi orðið höfundi sín- um dýrkeyptari en þessi. Skáldskapurinn var meginþáttur í ævi lians og ástundun frá æskuárum til loka. Allt annað, sem hann fékkst við, var annaðhvort vinna fyrir brýnustu lifsnauð- synjum, menntun og þjálfun til þess, að skáldgáfa hans gæti notið sín, eða hjáverkadund, sem stundum virtist eins konar flótti frá því að yrkja, af því að hann var hræddur um að geta ekki gert sjálfum sér til hæfis. Svo dult sem Magnús fór með ljóð sín, óskaði hann þeim bæði frægðar og langlífis og taldi ekki eftir sér tímann að gera þau hvors tveggja verð. Einu sinni barst kvæðið Amma kvað i tal milli okkar. Mér hefur alltaf fundizt það perla og sagði við hann, að ég hygði það mundu seint fyrnast, en bætti við: „Þér er reyndar liklega sama uin það.“ Magnús svaraði óvenjulega snöggt og fast: „Nei, mér er ekki sama um það.“ Þetta var eina skiptið, sem Magnús lét svo berlega uppi við mig, hvers virði ljóð hans væru honum, og hann sagði mér á eftir, hvernig þetta kvæði hefði orðið til. Það var að búa um sig i honum lengi sumars, meðan hann var i vegavinnu og við jarðabætur austur á Þingvöllum. Hann fór að sjá gamla konu sitja og róa með barn i fangi. Hann sagðist hafa séð hana bera við ghigga, ekki alveg á hlið henni, heldur sniðhallt aftan á hana, og fyrst sýndist honum hún vera með stúlkubarn. Seinna sá hann, að barnið var drengur. Upp úr þvi fór kvæðið, sem hún raulaði, að skapast, og hann orti það veturinn eftir. Mér virðist, er eg liorfi nú yfir þessa bók, að Magnús hafi átt í fari sínu gáfur, skap og djörfung til þess að verða frum- legra og stórbrotnara skáld en hún ber vitni um, — hann hefði getað markað meira spor í sögu íslenzkrar ljóðagerðar. Nokk- uru hafa valdið erfið ævikjör, raunir, sem lömuðu viðkvæma lund, en miklu, að hann var of fjölhæfur, íhugull og vandfýsinn til þess að leggjast allur i eina kvisl af sjálfum sér. Kvæði hans eru ekki fylking, sem ryður nýja braut i yrkisefnum og formi, svo að marki öðrum skáldum stefnu, heldur margbreytileg, ein- förul, eins og höfundurinn, þótt svipur lians sé á þeim öllum. Hið einstaka kvæði, listaverkið, var honum nægilegt viðfangs- efni um sinn, stundum fremur íþróttin en efnið. Margt heill- aði. Engin stefna í hugsun né nýbreytni í formi virtist jiess virði, að leggja rækt við hana með iðni dropanna, sem hola
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.