Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1942, Page 100

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1942, Page 100
282 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR annars ljóss, og samt kennir hér hvergi neins, sem kallast mætti yfirnátlúrlegt eða trúarlegt. Samskonar yndi er Taóteking, Bókin um Veginn, sem einhverj- ar siðfe: cishetjur hafa tekið upp á að kalla Bókina um dyggð- ina og veginn, enda verður af formála hennar og eftirmála i hinni nýju íslenzku þýðingu tæplega annað ráðið en hún sé út gefin sem nokkurs konar handbók i siðferði fyrir Vestur- landamenn tuttugustu aldar. En það er álika fráleitt að ætla sér að hafa Taóteking fyrir kristilegt barnalærdómskvér eins og lifa samkvæmt málverki frá T’ang-dýnastíunni. Ritið er full- komnast tákn og tjáning sérstakra menningarstrauma í Kína fyrir hálfu þriðja þúsundi ára, sem nú eru samrunnir kínversku mannlífi. Fornkinverskt lífsviðhorf og mannfélag á ekki skyll við hinn vestræna heim nútímans; einræktaður Kínverji var og er frá flestum sjónarmifum, meira að segja líkamsfræðilega, manngerð ósammælanleg Vesturlandabúum. Það er sjúkleiki liið innra sem ytra, andlegur og likamlegur vanmáttur, að vilja snúa öllu í siðferðishandbók, barnalærdómskver og endurlausnar- kenningu, sem manni finnst fallegt; slikum mönnum er einfald- ast að ganga í Sáluhjálparherinn, annars eiga þeir á hættu að fara að frýsa og éta hey, ef þeir sjá fallegan hest. Þýðandinn er þvi miður nokkuð ofhaldinn af þessari smáborg- aralegu flathyggju, herkerlingarsjónarmiði þvi, sem á ensku er kallað vulgar. Hann setur framan og aftan við bókina heilmik- ið af falskristilegum siðferðishetjuskap og þess konar spakmæl- um, sem prentuð eru aftan á vigtarseðla sjálfvirkra persónu- vigta í fordyrum amerískra vöruhúsa. Dæmi: „Sá sem hefur byggt lifsskilning sinn á föstum grundvelli, skilur sitt eigið innra eðli, stendur föstum fótum í lifinu“, (skýring á 54. kafla í Taóteking). „í þessum kafla (44.) felst viðvörun lil manna við þvi að sækjast eftir auði, frægð, frania, því að það hafi ekkert varanlegt gildi“ o. s. frv. Það er ekki ónýtt, eða hitt heldur, að fa aðra eins fræðslu og þetta: „Lao-tse vildi hamla gegn spillingu þjóðfélagsins með þvi að innræta mönnum dyggðir hjartans" og þvíumlíkt. Þýðandi „stingur inn í“ á einum stað, að „Lao-lse trúi staðfastlega á ódauðleik sálarinnar". Hverjum er þjónað með þessu rugli? Sáíin ;• ekki til sem kínverskt hugtak, allra sízt forn-kínverskt, c0 hin kristna hugmynd um „ódauðleika sálarinnar'* þaðan af siður. Hitt væri sönnu nær, að segja, að Laó-tse tryði á ódauðleika dalsins og ódauðleika vatnsins. Bókin um Veginn er lianzki, sem var í upphafi kastað í andlit konfúsianismans, mótvægi og andsvar gegn honum og spott um hann; hún er framar öllu draumur sveitasælunnar, sem ævin-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.