Tímarit Máls og menningar - 01.12.1942, Side 107
Mál og menning
Við treystum því, að flestir félagsmenn hafi nú fengið íslenzka
menningu i liendur. Vil ég þá, um leið og þetta fyrsta bindi
at' Arfi íslendinga kemur úl, þakka fyrir hönd stjórnar Máls
og menningar öllum, sem hafa unnið á einn eða annan hátt að
því, að þetta verk kemst i framkvæmd.
Þegar ákvörðun var tekin um útgáfu þessa verks, áttum við
allt traust, þar sem voru félagsmenn og umboðsmenn Máls og
menningar. Þeir hrugðust ekki því trausti. Og þegar tilraun vai
gerð af sterkum öflum i þjóffélaginu að eyðileggja stai-fsemi
Máls og menningar og einkum í þeim tilgangi að hindra útgáfu
Arfs íslendinga, þá voru það enn umboðsmenn félagsins og
félagsmenn sjálfir, sem stóðu á verði um menningarhugsjón þess.
Fjöldi umboðsmanna liefur unnið fórnfúst starf af lifandi áhuga
fyrir Mál og menningu og Arf íslendinga sérstaklega. Og félags-
menn sýndu okkur það traust að greiða fyrirfram gjald til Arfs
íslendinga, öruggir og fastir fyrir, hvaða áróður, sem rekinn var
gegn félaginu og hvernig sem reynt var að tortryggja starf þess
í augum almennings. Án starfs og skilnings og áhuga þessara
manna allra hefði Máli og menningu ekki tekizt að koma þessari út-
gáfu í framkvæmd. Þetla atriði viljum við láta koma skýrt í
ljós nú. Það lesendaúrval íslenzku þjóðarinnar, sem skipaði sér
í Mál og menningu, hefur á verstu afturhaldstímum, þegar kyrkja
átti starf beztu listamanna okkar og menntamanna, staðið sjálft
á verði og bjargað við menningarheiðri íslands.
En því þakklátari sem við erum þessum mönnum, því meiri
gleði er okkur að því að geta endurgoldið þeim með öðru eins
verki og íslenzkri menningu eftir Sigurð Nordal. Þegar öll bindi
þessa verks, og Arfur fslendinga allur, verða komin i eigu fé-
lagsmanna, þá skilja þeir til fulls, hvers virði það er að fórna
nokkru í trausti á islenzka menningu. Bók Sigurðar Nordals
verður lesin og ihuguð, og ég er fullviss þess, að dómurinn verð-
ur ekki nema á einn veg, að betri og verðmætari gjöf var ekki
unnt að gefa íslenzku þjóðinni á þessum tíma. Og gildi þessa
verks mun verða því meira metið, sem lengra líður fram. Um
ókomna áratugi mun það vekja hjá íslcjsdingum skilning og
ást á þjóðinni, sögu hennar og menningu og kenna þeim að meta