Tímarit Máls og menningar - 01.12.1942, Qupperneq 108
290
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
og skynja örlög sín i gleggra ljósi. Um langa framtið í sögu
íslands verður jiað lieiður félagsinanna í Áláli og menningu
að hafa eflt höfund þessa verks til að reisa íslenzkri nútima-
menningu jafn fagran minnisvarða. En samtök félagsmanna bera
líka augljósan hagsmunaárangur, jiar sem íslenzk menning er.
Berið aðeins saman 15 króna verðið á þessari bók við annað
bókaverð nú!
Svo var ráð fyrir gert upphaflega, þegar áætluð var útgáfa
Arfs íslendinga, að árgjaldið 1943 rynni til hennar, en útgáfa
árbóka félagsins félli niður jiað ár. Nú hefur stjórn Máls og
menningar horfið frá þessu ráði af mörgum ástæðum. Fyrst er
það, að útgáfu Arfsins getur ekki orðið lokið á þessu ári. f
öðru lagi e,r mjög óþægilegt að raska útgáfu félagsbókanna,
t. d. Tímaritsins, sem er hundið við að koma út árlega. í ])riðja
lagi er ófært að skerða meira útgáfuna en dýrtíðin sjálf hefur
gert né láta dragast lengur verk eins og mannkynssöguna, sem
löngu hefur verið ákveðið að gefa út. A fundi félagsráðs Máls
og menningar 31. jan. s.l. var því samþykkt tillaga frá stjórn-
inni um að gefa út félagsbækur í ár og var árgjaldið jafnframt
ákveðið í samræmi við dýrtiðarvísitölu, og þó nokkru lægra,
eða 25 krónur. í rauninni er stjórn Máls og inenningár mjög illa
við að jmrfa að breyta oft árgjaldinu, hækka það á pappírnum,
þó að það lækki raunverulega. En hjá þessu verður ekki komizt,
nema draga útgáfuna alltof mikið saman. Prenlun og bókbands-
vinna, en þó einkum pappír, hefur hækkað miklu meira en vísi-
tala sýnir. Rís af pappir, sem kostaði fy.rir stríð 24—28 kr., er
nú komið upp í 120—150 krónur. Þó að árgjaldið fylgi vísi-
tölu, hlýtur útgáfan samt að verða minni en áður fyrir 10 kr.
Félagsmenn geta lika séð, að liað er ekki stór bók, sem fæst á
frjálsum markaði fyrir 25 krónur, en með samtökum eins og
Máli og menningu er þó að minnsta kosti unnt að gefa út þrjár
allstórar bækur fyrir árgjaldið.
Arið sem leið tók prentun og bókbandsvinna á fyrsta bindi
af Arfi íslendinga svo langan tíma, að við það töfðust önnur
verk, sem félagið ætlaði að koma út. Fyrsta bindi af mannkyns-
sögunni hefur t. d. orðið að bíða, og eins og skýrt hefur verið
frá áður, hefur stjórn Máls og menningar i huga að gefa öðru
hvoru út bækur til sölu á frjálsum markaði til ágóða fyrir fé-
lagið. Fyrsta bókin var ákveðin safn af þjóðkvæðum og þjóð-
sagnakvæðum, er nefnist Fagrar heyrði eg raddirnar. Dr. Einar
Öl. Sveinsson hefur séð um útgáfuna. Bókin var prentuð all-