Tímarit Máls og menningar - 01.05.1951, Side 10
128
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
dags. Hann var að vísu Kóreumaður að uppruna, en bandarískur þegn
og hafði ekki stigið fæti á ættjörð sína um nokkra áratugi. Nú var hann
fluttur yfir Kyrrahafið í bandarískri herflugvél haustið 1945. Án íhlut-
unar Bandaríkjanna liefði þessi maður enga möguleika haft til þess að
leika forustuhlutverk í Kóreu.
„Þjóðþing“ Suður-Kóreu var til orðið upp úr kosningum, sem
Bandaríkin knúðu fram í maí 1948 — einhverjar mestu endemiskosn-
ingar, er sagan getur um. Vinstriflokkar og miðflokkar landsins börð-
ust gegn þessum kosningum af alefli og neituðu að taka þátt í þeim,
þar sem ljóst var, að með þeim var verið að lima landið sundur í
tvennt, að líkindum til langframa. Það voru því flokkarnir yzt til hægri
-—■ og þeir einir, er stóðu að þessum kosningum, sem að öllu leyti voru
háðar undir merkjum þvingunar og ofbeldis. Á kosningadaginn mátti
segja, að landið væri í fullu uppnámi, sem minnti á borgarastyrjöld.
Háttvirtum kjósendum var smalað saman af vopnaðri lögreglu og rekn-
ir í hópum á kjörstað, eins og fé er rekið til réttar. í sumum héruðum
að minnsta kosti kom það upp úr dúrnum, að kjörseðlarnir voru tölu-
settir og talan sett við nafn mannsins á kjörskránni um leið og
hann kaus. Þó voru þetta auðvitað „frjálsar“ og „leynilegar“ kosning-
ar, og eftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna — hin svokallaða Kóreu-
nefnd — lagði virðingu sína að veði fyrir því, að þarna væri rétt að
öllu farið! Þúsundum var varpað í fangelsi kosningadaginn, nokkur
hundruð drepnir og enn fleiri hundruð særðir. Þátttakan var lítil, svo
sem vænta mátti, þrátt fyrir miskunnarlausa smölun. Sumir nefndu 30
af hundraði, aðrir enn lægri tölu.
Kosnir voru 200 fulltrúar alls. Af þeim voru 84 stórjarðeigendur,
32 iðjuhöldar, 23 embættismenn frá stjórnartíð Japana. Afgangurinn
var svo nokkrir ritstjórar hægriblaða og aðrir álíka íhaldsjálkar.
2
Síðar á þessu sama ári (1948) fóru fram aðrar kosningar — til
þjóðarráðs Kóreu, eins og það er kallað. Þær kosningar fóru ekki ein-
ungis fram í Norður-Kóreu, heldur um land allt — að vísu „neðan
jarðar“ sunnan 38. breiddarbaugs, þar sem ekki var annars kostur.*
* Annars staðar í bók sinni gerir höf. ýtarlega grein fyrir því, hvernig leyni-
kosningar þessar fóru fram, en hér verður að sleppa því vegna rúmleysis.