Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1951, Blaðsíða 40

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1951, Blaðsíða 40
158 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR hennar á herðatré. Hún fann til ógleði þegar þau gengu inn teppa- lagðan ganginn. Þau gengu gegnum tvær stórar stofur búnar dýrindis húsgögnum, hann á undan, hún á eftir. Þriðja stofan var minnst, það sást úr henni inn í hinar stofurnar gegnum slípaðar vængjahurðir, sem aðgreindu þær. 011 voru herbergin upplýst af vegglömpum, sem gáfu frá sér daufa birtu. Skóbljóð þeirra hvarf í þykkum gólfteppum, hitinn var kæfandi og ekkert hljóð rauf þögnina nema tifið í Borgundarhólmsklukku, sem stóð við einn vegginn. Ekkert orð hafði farið á milli þeirra meðan þau gengu gegnum herbergin. Hún gekk líkt og í draumi, vissi vart af sér. Hún var að brjóta heilann um eitthvað, sem hún varð að muna en gafst upp við það. Upp við einn vegginn var sóffi, fyrir framan hann smáborð. Hann leiddi hana til sætis í sóffanum, hún settist og fann um leið til óendanlegrar þreytu. Hann bar fram vín og sígarettur, konfekt og vindla. Hann snerist eins og skopparakringla, opnaði einn skápinn af öðrum og bar fram vistir. Hann hellti í glösin, settist á stól andspænis henni við borðið, hyssaði sér í stólnum, kumraði dálítið, bauð henni sígarettu, kveikti sjálfum sér í vindli, rétti henni annað glasið og skálaði. „Skál, drekktu telpa mín.“ Hann svolgraði úr glasinu, smjattaði, sleikti út um og dæsti af ánægju. Henni sýndist hann tútna út eins og loftbelgur, stækka um allan helming. Hún þreif glasið sitt og draldc það í botn. „Sú þykir mér kunna á því lagið, það er til einhvers að gefa svona kvenfólki vín, þetta líkar mér. Skál telpa mín.“ Hann hló tröllslegum 'hlátri svo undir tók í stofunni. Hún fann hitann af víninu læsast um sig eins og eld og sogaði áfergjulega reykinn úr sígarettunni. Hún fann að hann horfði á hana en varaðist að líta á hann á móti og fór að virða fyrir sér umhverfið, og allt í einu hvarf allur dofi úr líkama hennar. Um leið og hún sá allt skrautið, skynjaði allan þennan óhóflega íburð, alla stólana, allar gólfábreiðurnar, kristalinn, silfrið, allt sem hann gat keypt hana fyrir, fylltist hún hvítglóandi hatri. Hún fann hvernig það flæddi um líkama hennar eins og heitur málmstraumur, fann hvernig blóðið hitnaði og varð svart í æðum hennar og fékk heiskt bragð í munninn. Hún fann hvernig stofan fylltist af hatri,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.