Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1951, Blaðsíða 20

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1951, Blaðsíða 20
138 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR tion“ skýrði á sínum tíma frá meginatriðum hins fræga plaggs á þessa leið: I orðsendingunni er í ótvíræðu orðalagi kvartað yfir því, að Seoulstjórnin hafi gert sig seka um stórkostlegan yfirdrátt í bönkunum, að hún hafi vanrækt að innheimta skatta, að hún hafi selt hinar amerísku hjálparvörur of ódýrt (til hagsmuna fyr- ir spekúlanta, sem voru henni eitthvað vandabundnir), að hún liafi með ótilhlýðilegum hætti fært út svið fjárhagsaðstoðarinnar, og loks, að forsetinn hafi lýst yfir því, að kosningunum yrði frestað þar til í nóvember. í orðsendingunni er lögð á það á- herzla, að ef Seoulstjórnin hirði ekki um að stöðva verðbólguna í landinu, muni hjálparstofnunin (E. C. A.) neyðast til þess að taka áætlun sína um aðstoð til handa Suður-Kóreu til nýrrar endurskoðunar. Bent er á það með alvöruþunga, að hin banda- ríska fjárhagsaðstoð hafi verið veitt á þeirri forsendu, að hlynnt yrði að lýðræðislegum stofnunum hins nýja ríkis og þær efldar til þroska og heilla fyrir þjóðina. Þetta voru nokkur meginatriði orðsendingar Bandaríkjastjórnar frá 17. apríl 1950. Það dylst ekki, hversu mjög lýsing sú, er í þessum ásök- unum felst, minnir á ástandið í Kína, áður en Chiang Kai Shek veltist úr völdum. Hin lýðræðislegu klæðaföll, er skrýddu orðsendinguna, leyndu í fellingum sínum þeirri skýlausu kröfu Bandaríkjastjórnar, að kosningar yrðu látnar fara fram innan maíloka. Nú voru góð ráð dýr fyrir Syngman Rhee. Marshallaðstoðin — ca. hundrað milljónir dollara á ári — var í veði. Honum var nauðugur einn kostur að fallast á kröfuna. Og kosningadagurinn var endanlega ákveðinn 30. maí. Það segir sig sjálft, að raunverulega gat ekki verið um frjálsar kosn- ingar að ræða, eins og ástandið var í Suður-Kóreu. I landinu geisaði í raun og veru borgarastyrjöld. Stjórnin átti í stríði við meginhluta þjóðarinnar. Stjórnarandstaðan sat í fangelsum, var réttlaus í landinu eða stóð í vopnaðri baráttu. Ur heilum byggðarlögum hafði fólkið ver- ið rekið á brott með valdi og ráfaði á vegum úti. Vissulega var ekki heldur til þess ætlazt, að kosningarnar væru frjálsar. Hér átti aðeins að endurtaka söguna frá 1948. Yfirstéttirnar, hinir efnuðu borgarar, háðu kosningar og áttu helzt að vera einar um hituna. — Hvers konar ógnar-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.