Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1951, Síða 18

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1951, Síða 18
136 TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR kóreskra bænda, ætluð til þess að vekja ógn og skelfingu meðal þessara varnarlausu útlaga. Herstjórnin hafði gert ráð fyrir, að leiðangri þess- um myndi lokið á svona tveim mánuðum, en mótstaðan reyndist miklu öflugri en nokkurn hafði órað fyrir. Víða fóru hersveitirnar hinar mestu hrakfarir, og einn mánuðurinn leið af öðrum, án þess að refsi- leiðangrinum yrði lokið. Það var komið langt fram á vetur, og ástand- ið var ægilegt. 9. marz 1950 skrifaði bandarískur fréttaritari frá „New York Times“ blaði sínu meðal annars á þessa leið: „I mörgum héruðum Suður-Kóreu geisar nú ógnaröld, sem líklega á sér engin dæmi í víðri veröld. Hvar sem stjórnarhersveitirnar rekast á vopnaða menn, eru þeir umsvifalaust fluttir til næsta þorps, skotnir án nokkurra réttarhalda og síðan hengdir upp í tré til uppbyggingar og viðvörunar þeim, sem eftir lifa.“ En inn í þessi grimmdarfullu sláturstörf þurfti svo að blandast hinn naprasti skopleikur. Samtímis því, að sveitaþorpin stóðu í björtu báli, skotin gullu án afláts frá aftökusveitum Syngman Rhees og bændafólk og leiguliðar var með harðri hendi rekið frá heimilum sínum víðs veg- ar uin Suður-Kóreu, fæddist sú snjalla hugsun í heilum yfirboðara Syngman Rhees, að einmitt nú væri alveg tilvalið að efna til „frjálsra kosninga“ einu sinni enn. Hin virðulega Kóreunefnd Sameinuðu þjóð- anna skyldi enn á ný fá að leggja blessun sína yfir eitt hinna frábæru sveinsstykkja, sem vestrænir nýlenduherrar eru slíkir snillingar í að setja á svið. Því miður hefur þessi snilli þeirra ósjaldan orðið til þess að ávinna þeim hatur og fyrirlitningu Asíubúa, svo að þeir skyrpa um tönn, þegar nefnt er „vestrænt lýðræði“, „þjóðabandalag“ eða annar álíka viðbjóður. Fyrri hluti aprilmánaðar 1950 einkenndist af slíkri óskaplegri ring- ulreið, að þess eru naumast dæmi í allri sögu Kóreu, og er þá mikið sagt. í fyrsta lagi hafði herleiðangur stjórnarinnar mistekizt í veru- legum atriðum, skæruliðarnir hafið gagnsókn og uppreisnin breiðst út til nýrra og nýrra héraða. í öðru lagi var þjóðfélagið á tjái og tundri yegna hinna væntanlegu kosninga, sem stjórninni var nauðugur einn kostur að láta fara fram. Þrisvar sinnum á hálfum mánuði hafði Syng- man Rhee tilkynnt kosningadaginn, og aldrei bar honum saman við sjálfan sig. Fyrst hafði verið ákveðið, að kosningarnar færu fram 10. maí, svo áttu þær að verða síðast í júní, og að lokum átti að slá þeim
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.