Tímarit Máls og menningar - 01.05.1951, Síða 22
140
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
ættu þeir að fá hlutabréf í um fimm þúsund verksmiðjum og námum.
Fyrirtæki þessi hefðu áður verið í höndum Japana, en ríkið eignazt þau
að styrjaldarlokum ...“
Enginn skyldi halda, að það hafi í raun og veru verið ætlun Syng-
man Rhees og kumpána hans að afnema hið miðaldalega jarðeigna-
skipulag, eins og látið var í veðri vaka. Útvarpsboðskapurinn frá Seoul
þjónaði allt öðrum tilgangi. Honum var ætlað að rugla skæruliðana í
ríminu, róa fólkið í bili og fá það til að bíða eftir „umbótunum“. Að
tjaldabaki voru aðrar ráðagerðir á prjónunum en að rétta hlut alþýð-
unnar. í stað þess að bíða eftir því, að nýtt þingræðishneyksli afhjúp-
aði fyrir öllum heimi vantraust þjóðarinnar á stjórninni, urðu nú aðr-
ar atgerðir að koma til sögunnar, þar sem hinn vopnaði her léki aðal-
hlutverkið. Úr því að kosningarnar höfðu misst svo hrapallega marks,
skyldi nú vopnavaldinu teflt fram til varnar lénsskipulaginu og lepp-
stjórninni í Seoul.
Fimm ára „lýðræðispólitík“ Bandaríkjamanna í Suður-Kóreu hafði
leitt til algers gjaldþrots. Yfir það varð að breiða, hvað sem það kost-
aði. Ógnarklíka Syngman Rhees var til í allt — og nú var aðeins ein
leið út úr ógöngunum: styrjöld. Það varð að þurrka út umbótastefnuna
norðan 38. breiddarbaugs — þessa stefnu, sem hafði tendrað elda upp-
reisnar um gervallan suðurhluta landsins og ógnaði nú með fullkomnu
hruni öllu hrófatildrinu, sem Bandaríkin höfðu verið að reisa í Austur-
Asíu. Eftir ófarirnar í Kína máttu þau ekki við slíkum ósigri.
II. Hver var árásaraðilinn?
1
Af hálfu Bandaríkjanna og meirihluta Sameinuðu þjóðanna hefur
Norður-Kórea verið sökuð um árás. Það liggur því nærri að athuga
viðhorf Norður-Kóreumanna og athafnir vikurnar næstu áður en til
vopnaviðskipta kom við 38. breiddarbaug. Hvaða markmið höfðu
þeir fyrir augum, og hver voru viðbrögð þeirra gagnvart hinum hrak-
lega ósigri Syngman Rhees í kosningunum 30. maí? Hvað var aðhafzt
til þess að koma á einingu allrar Kóreu í frjálst og óháð þjóðríki? En
það var vitanlega óskadraumur svo til allra Kóreubúa.