Tímarit Máls og menningar - 01.03.1958, Blaðsíða 14
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
lánsfé. Mál og menning hefur ekki fremur nú, síðan Vegamót voru stofnuð, tekið neitt frá
útgáfunni eða dregið úr henni á neinn hátt þeirra vegna.
Hins vegar hefur Mál og menning farið tvær leiðir til að geta eignazt sem stærstan hlut
í Vegamótum. Um leið og hlutafélagið var stofnað gaf Mál og menning út hlutdeildar-
skuldabréf að upphæð 300 þús. kr. og skyldi andvirði þeirra eingöngu varið til kaupa á
hlutabréfum í Vegamótum. Þessi skuldabréf eru flestöll seld og á Mál og menning samsvar-
andi upphæð í Vegamótum. Hin leiðin var útgáfa á Kvæðum og sögum Jónasar Hallgríms-
sonar í hundrað og fimmtíu ára minningu skáldsins. Utgáfan er seld á 300 kr. í skinni, og
er ágóða af henni ætlað að renna til hlutafjárkaupa í Vegamótum, en hann er enginn enn
sem komið er.
Menn sjá af þessu að Mál og menning stendur enn mjög veikum fótum á Laugavegi 18.
Ætlun okkar var að félagið ætti a. m. k. þriðjung hlutafjárins í Vegamótum. En þó svo
tækist er það alltof lítið framlag til byggingarinnar. Þær 300 þús. kr. sem Mál og menning
hefur fram að þessu lagt fram er allt lánsfé til skamms tíma með 7% vöxtum. Þetta lánsfé
er að miklum hluta lagt fram af mörgum hinna sömu er standa að Vegamótum og hafa
viljað tryggja Máli og menningu hlutafé. Félagsmenn almennt hafa lítið eða ekkert til
byggingarinnar lagt, ekki einu sinni gerzt áskrifendur að Kvæðum og sögum Jónasar Hall-
grímssonar. En hvernig ætti Laugavegur 18 með öðru móti en almennu framlagi félags-
manna að geta orðið hús Máls og menningar? 1 raun réttri er ekki vel af stað farið nema
Mál og mcnning eigi þriðjung í byggingunni skuldlausan þegar hún er fullgerð. Og hvað
þyrfti til þess? Ekki annað en hver félagsmaður, hvar sem er á landinu, sœi sér fcert að
leggja í byggingarsjóð sem gjöf til Máls og menningar þó ekki vœri nema 500 kr. í eitt
skipti fyrir öll. Með slíku vœri allt viðhorf breytt, og Laugavegur 18 yrði raunverulega
heimili Máls og menningar.
Ef þess er nokkur kostur vilja Vegamót hraða byggingunni sem mest og koma henni
undir þak í haust. Tíminn fram til fyrsta maí í vor ræður úrslitum um þessa fyrirætlun.
Þeir félagsmenn sem vilja leggja fé af mörkum í byggingarsjóð Máls og menningar sendi
upphæðina í póstávísun beint til félagsins með utanáskrift: Byggingarsjóður Máls og
menningar, Þingholtsstræti 27, Reykjavík.
Vegamótum og Máli og menningu er vandi á höndum að reisa hina nýju byggingu, en
eitt eru allir sammála um, að svo framarlega sem það tekst, verður hún um alla framtíð
styrkur og vegur þessum aðilum og minnisvarði um stórhug og framsýni. Hún mun þá
einnig síðar meir verða lyftistöng bókaútgáfu Máls og menningar og félagsmenn um allt
land njóta góðs af.
En hafið hugfast, félagsmenn, að þótt Vegamótum takist með einhverju móti að ljúka
smíði þessarar byggingar, verður hún ekki heimili Máls og menningar nema með ykkar
aðstoð, hvers og eins.
Kr. E. A.
4