Tímarit Máls og menningar - 01.03.1958, Síða 94
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
Ferjað yjir Þjórsá hjá Þjórsárholti; myndin
gerð aj Jules Noel eftir uppdrœtti hðjundar.
hraktir út í jafnharðan með grjót-
kasti. Þegar útséð var um, að þeir
sneru aftur, greip einn ferjumanna
mig óvörum og bar mig út í bátinn,
sem flaut tvo metra undan landi. Ein
merin hafði komizt upp á bakkann,
þrátt fyrir grjóthríðina, og var hún
bundin við bátinn. Ég sat í skutnum
innan um reiðtygi og fylgdist með
aumingja skepnunum, er ég bjóst
riaumast við að sjá framar; straum-
urinn bar þær ótrúlega hratt niður
ána, ekkert stóð upp úr nema nasirn-
ar og taglið, sem flaut eins og þang
ofan á vatninu. Við fengum svo
snarpa vindhviðu á okkur úti í miðri
ánni, að bátnum nærri hvolfdi. Hún
feykti burt mistrinu, og ég sá, að
okkur bar til sömu strandar; bærinn
í Þjórsárholti blasti við mér, ég sá
heimilisfólkið standa veifandi í
brekkunni, og mér fannst ég vera á
leiðinni til nástranda.
Einhvern veginn komumst við þó
klakklaust yfir ána. Áhyggjur inínar
snerust nú um hestana, sem ég taldi
víst, að hefðu drukknað. En viti
menn, skammt frá ánni fann ég þá
alla á beit, svo rólega, að sem snöggv-
ast efaðist ég um, að þetta væru
hrossin mín.
Nú var haldið rakleitt að Stóru-
Völlum, þar sem ég hitti fyrir há-
menntaðan prest.1 Hann bauð mér
strax að vera, en ég var ákveðinn að
komast að næsta bæ við Heklu, til
þess að geta gengið á fjallið daginn
eftir, og hét honum því að gista á
bakaleiðinni. Þá bauðst hann til að
fylgja mér að Haukadal, en bóndinn
þar gæti síðan komið mér til bóndans
í Selsundi, sem er næsti bær við
Heklu. Ég hlakkaði til að halda það
heit, ekki sízt vegna þess, hve hann
talaði góða latínu og allt var hrein-
legt á prestsetrinu, — og það sem
mest var um vert: ég hafði séð upp-
búið rúm með drifhvítu líni í þilj-
aðri stofu, heillandi uppgötvun fyrir
1) Þessi hámenntaði prestur mun vera séra Guðmundur Jónsson. Hann var um skeið við
kennslu hjá Sveinbimi Egilssyni, varð prestur í Grímsey 1843, en fékk Stóru-Völlu á Landi
1846; hann lézt 1889.
84