Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1960, Blaðsíða 11

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1960, Blaðsíða 11
LANDHELGI ÍSLANDS með ákvæðum hvalveiðileyfisins 1631 og síðari samskonar leyfisbréfum. Bendir ýmislegt til þess að í leyfisbréf- um þessum hafi ekki verið um land- helgi að ræða í nútímaskilningi, held- ur hafi með þessu átt að gefa einok- unarmönnum einhverskonar erindis- bréf, m. a. til skipatökunnar. Að minnsta kosti setur konungur ekki fastar reglur um landhelgi við Dan- mörku og Noreg fyrr en 1810 að því er varðar fjarlægð frá ströndum. í skipatökureglugerð Danmerkur 28. marz 1810 er fjarlægðin ákveðin 4 sjómílur. Með konungsúrskurði 22. febr. 1812 var skorið úr ýmsum vafa- atriðum varðandi víðáttu landhelg- innar í Noregi og Danmörku; skyldi hún talin ein dönsk míla. Þessi kon- ungsúrskurður var aldrei birtur á ís- landi. ísland er ekki nefnt í texta hans, og hefur hann því aldrei öðlazt lagagildi hér á landi, enda þótt til hans sé vitnað í bréfi dómsmálaráðu- neytisins 18. apríl 1859, og þó að varðskipsmönnum væri með bréfinu falið að verja aðeins 4 sjómílna belti. Þar að auki voru hinar gömlu reglur um lokun flóa og fjarða aldrei felld- ar úr gildi, sbr. t. d. tilsk. 13. júní 1787, enda héldust hinar eldri refs- ingar samkvæmt henni allt til ársins 1872. Einnig má minna á konungs- bréfið 3. maí 1846, en þar segir að vísu á þá leið að hinum gömlu laga- boðum um 4 mílna landhelgi (þ. e. 24 eða 16 sjómílur) verði ekki fram- fylgt með þeim strangleika sem boð- inn er, heldur þannig að útlendingar torveldi ekki dönskum eða íslenzkum fiskimönnum veiðar á hinum hægustu miðum, „livort heldur er itinan eSa utan þessarar fjarlœgSar frá strönd- inni‘‘. Þetta sýnir að konungur telur sér enn heimilt að meina þegnum annarra ríkja veiðar „á hinum hœg- ustu miSum“ hér við land, þótt utan landhelgi sé, þ. e. á helztu fiskimið- um landsmanna eða e. t. v. hinum eig- inlegu íslandsmiðum öllum. Samkvæmt tilsk. 13. júní 1787 voru flóar allir og firðir lokaðir útlending- um nema í neyð. Ekki var minnzt á víðáttu landhelginnar í lilskipun þess- ari, en víst er um það að hún var ekki þrengd. Hitt er athyglisvert að fast skuli vera haldið við lokun fjarða og flóa. Þar er meðal annars að finna sögulega heimild vora að kröfu nú- tímans um langar grunnlínur. Efa- laust hefur þetta kerfi verið í gildi allt til 1903, því að orðalagið í tilskipun 12. febr. 1872, að útlendingar skuli sæta sektum ef þeirveiða fyrir strönd- um íslands „innan þeirra takmarka á sjó þar sem landhelgi er, eins og þau eru ákveðin í hinum almenna þjóða- rétti“, getur ekki afnumið ákvæðin. m. a. vegna þess að aldrei hefur fyrr eða síðar gilt nein alþjóðleg regla um víðáttu landhelginnar. Og þar eð þessi regla hefur aldrei verið formlega úr lögum numin hér á landi hlaut oss að vera heimilt að krefjast þess að hún 89
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.