Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1960, Blaðsíða 13

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1960, Blaðsíða 13
LANDHELGI ÍSLANDS IV En aðrir vissu betur. AriS 1930 var endanlega staðfest af ríkisstjórnum og fræðimönnum á hinni miklu ráð- stefnu í Haag um réttarreglur á haf- inu, að engin alþjóðaregla væri til um víðáttu landhelginnar. En nú var krafan um yfirráð yfir landgrunninu komin til sögunnar. Fyrst í stað virð- ist íslenzkum fræðimönnum ogstjórn- málamönnum ekki hafa verið um hana kunnugt, en hinsvegar var allt síðan árið 1918 er ísland fékk sjálf- stæði sitt viðurkennt, haldið vakandi kröfunni um endurskoðun eða upp- sögn samningsins við Breta. Árið 1946 lýsti sjávarútvegsmála- ráðherra yfir því að vér íslendingar ættum að helga oss einum allt land- grunnið. Þessi krafa fékk svo skjótar undirtektir að árið 1948 voru sett á Alþingi lögin um vísindalega verndun fiskimiða landgrunnsins. Á grundvelli þeirra var sett hin vanhugsaða frið- unarreglugerð fyrir Norðurlandi árið 1950 og ennfremur samskonar friðun- arreglugerð umhverfis allt landið 1952. í báðum þessum reglugerðum var miðað við einhverskonar 4 sjó- mílna friðunarhelti og fremur stuttar grunnlínur. Þetta kerfi átti enga stoð í vorum rétti, og sem betur fer tókst talsmönnum þess hér og erlendis aldrei að festa það í sessi. Næsta skrefið var reglugerðin 30. júní 1958, en með henni var tekin upp hér við land 12 sjómílna fisk- veiöalandhelgi. Þetta var mikil fram- för, einnig að því leyti að nú er talað um fiskveiðalandhelgi í stað friðun- arbeltis í tveimur fyrri reglugerðun- um. Samkvæmt þeim var öllum bönn- uð veiði innan markanna, þar á með- al íslendingum, en með nýju reglu- gerðinni er íslendingum heimilað að stunda ýmsar veiöar i landhelgi eftir nánari reglum. En á þessu kerfi er sá megingalli, að fiskveiðalandhelgi er ekki landamæralína í skilningi þjóða- réttarins, og kemur því ekki að sama gagni og pólitísk landhelgi eða al- menn lögsögulandhelgi. Þessi tilslök- un var gerð til þess að þóknast Bret- um, svo að þeir gætu að réttum ís- lenzkum og alþjóÖlegum lögum haft herskip við gæzlu veiðiþjófa í fisk- veiðalandhelginni, enda hafa þeir notað sér þessa nýju undanþágu ó- spart. Aðgerðir Breta hafa þó orÖið til þess að auka áhuga og skilning landsmanna á málinu. Allir munu nú sjá og skilja að ekki er lengur hægt að viðhalda þessum tvískinnungi: að Bretum sé leyft óátalið að halda uppi hernaðaraðgerðum innan fiskveiða- landhelginnar, en vér teljum oss þó í orði kveðnu hafa þar einkarétt til friöunar og veiða. í þessu efni mætt- um vér gjarnan hugleiða gátu Ham- lets: að hrökkva eða stökkva, það er vandinn. 91
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.