Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1960, Blaðsíða 63

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1960, Blaðsíða 63
UMSAGNIR UM BÆKUR telur hámenntaða. Krabbe minnist að sjálf- sögðu oft á konungana, og sannast að segja dæmir liann þá fyrst og fremst eftir afstöðu þeirra til málefna Islands. Friðrik VIII fær lijá lionum hinn bezta dóm, enda var honum mjög umhugað um Island og fylgdist af lif- andi áhuga með öllu, sem varðaði mál þess. En þegar röðin kemur að Kristjáni X er tóndætið setzt í hásætið. Konungur hafði engan áhuga á málefnum Islands, og tak- markaðan skilning á sjálfstæðiskröfum þess. Þegar Hannes Hafstein gekk á fund Kristjáns konungs X í fyrsta skipti, segir Krabbe, að viðtalið hafi haft mikil áhrif á Hannes Hafstein, og hann skalf af geðs- hræringu, er hann kom út frá konungi, og Krabbe hefur eftir Hannesi, „að konungur hefði talað þannig um Island og Islendinga, að aðstaða hans á Islandi hefði aldrei átt sér viðreisnar von, ef Hannes hefði látið löndum sínum berast ummælin“. Þannig var afstaða Kristjáns konungs X til Islands og Islendinga alla hans valdatíð. Krabbe talar oft um áhugaleysi hans og tómlæti, en jafnframt hafði konungur harnalega trú á persónulegum vinsældum sínum meðal Islendinga t. d. í sambandi við þjóðaratkvæðagreiðsluna 1944. Hins vegar dregur Krabbe á engan hátt úr því, að Kristján konungur vann sér ágætan orðstír á hernámsárunum sem einingartákn dönsku þjóðarinnar í baráttunni gegn nazismanum. Meginefni bókarinnar fjallar sem sagt um sambandslögin 1918 og undirbúning þeirra og allan aðdraganda og svo skilnað- inn við Dani 1944. Saman við þetta bland- ast svo frásagnir af mönnum og málefnum, sem snerta beint og óbeint þessi tvö aðal- mál, þannig að frásögnin fær aukna breidd og víðara vænghaf, þó að hún sé fyrst og fremst saga þess, sem til ber í þeim málum, sem snerta sambúð íslands og Danmerkur og þátt Krabbe í að efla skilning og vináttu milli landanna, en það er engunt vafa undir- orpið, að hann hefur unnið þar gott og heillaríkt starf, bæði meðan Island laut Danmörku og eins eftir að fullur skilnaður komst á. Enda þótt Jón Krabbe sé danskur þegn og ævistarf hans hafi verið unnið á erlendri grund, ber þessi bók hans með sér, að hann hefur borið hag íslands fyrir brjósti flestu öðru fremur. Ef ætti að ásaka hann fyrir hlutdrægni, þá væri það vegna þess, að liann dregur fyrst og fremst taum Islands og Islendinga, því að dóntar hans um menn og ntálefni eru að verulegu leyti reistir á því, hver afstaðan var til Islands og Islands- mála. Aftast í bókinni eru svo prentuð nokkur fylgiskjöl frá þessu tímabili, sem bókin fjallar um, og það eykur að sjálfsögðu gildi hennar sem sagnfræðirits, og það er trú mín, að hún muni reynast traust og gott heiniildarrit. Og fyrir utan hið sagnfræði- lega gildi, er þetta einstaklega geðþekk bók vegna þeirra kynna, sem lesandinn fær af þessum heilsteypta drengskaparmanni, sem á pennanum heldur. Aðalgeir Kristjánsson. Vilhjálmur jrá Skáholti: Jarðnesk Ijóð Bókav. Kristjáns Kristjánssonar. Reykjavík 1959. Vilhjálmur frá Skáholti á sannarlega sína eigin rödd í skáldahópnum. Hann hefur ekki lifað neinu uppöpunarlífi, hann hefur lifað sínu eigin litríka lífi, kannski ekki að öllu leyti svo mjög eftirbreytnis- verðu, kannski öðruvísi en bæði hann sjálf- ur og vinir hans hefðu óskað, en skáld- skapur hans er uppskera þessa lífs. Vegna þess að hann var Vilhjálmur frá Skáholti, undanbragðalaust, gat hann ort kvæði eins og Jesús Kristur og ég; að minnsta kosti 141
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.