Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1960, Blaðsíða 15

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1960, Blaðsíða 15
LANDHELGI ÍSLANDS getur átt á hættu að verða svipt við- urkenningu. Þessvegna verða lands- menn sjálfir að vera á verði og gera sitt til að stöðva tómlæti og linkind yfirvaldanna. Annars er hætta á að sá hópur fari enn vaxandi erlendis sem er á þeirri skoðun að oss sé engin al- vara í landhelgismálinu. VI Hafið umhverfis Island, Islandsmið forn og ný, eru hluti af íslandi, sam- eign vor íslendinga heima fyrir, al- menning hafs, en séreign vor gagn- vart öðrum þjóðum. Að sinni munu 12 sjómílur nægja oss sem almenn pólitísk landhelgi. En utan þeirrar línu munum vér í fram- tíðinni helga oss fiskimiðin til frið- unar og veiða á grundvelli sögulegr- ar hefðar, gildandi landgrunnslaga og nauðsynjar þjóðarinnar. Því að það er sannarlega rétt sem íslenzka ríkis- stjórnin sagði í bréfi sínu til Samein- uðu þjóðanna 5. maí 1952: „.. .Vissu- lega má segja að fiskimiðin við strendur landsins séu lífsskilyrði fyrir íslenzku þjóðina (conditio sine qua non), því að það eru þau sem gera landið byggilegt. Ríkisstjórn íslands telur sér heimilt og beinlínis skylt að gera einhliða allar nauðsynlegar ráð- stafanir til þess að viðhalda þessum auðlindum." Vafalaust væri rétt að vér helguð- um oss einum sérstakt viðbótarbelti utan pólitísku landhelginnar, t. d. 12 sjómílur í samræmi við eldri hefð. Margir erlendir fræðimenn hallast að þesskonar reglu, þegar strandríkið á afkomu sína að verulegu leyti undir fiskveiðum. Þessari reglu vex ört fylgi, sbr. t. d. ákvörðun strandríkja Suðurameríku og tillögu Mexíkó á ráðstefnunni í Genf. Ég tel að vér eig- um ekki til lengdar að sætta oss við minna en 16—24 sjómílna landhelgi. Landhelgismálið er sjálfstæðismál, barátta fyrir sögulegum rétti og fram- tíðarnauðsyn. í þessu máli munum vér sigra eins og öðrum þáttum sjálf- stæðisbaráttunnar. Því hærra sem markið er sett, því meiri verður sig- urinn. Sagan sýnir að ýtrustu kröf- urnar reyndust alltaf réttustu kröf- urnar. Helztu heimildarrit: Alþingisbœkur lslands — Alþingistíð- indi ■— Einar Arnórsson, Agrip aj íslenzkri stjórnlagajrœði I, útg. Bjarni Benediktsson, (Rvík 1935) — Grágás (Kbh. 1852—70) — Islenzkt fornbréjasajn — Jónsbók (Kbh. 1904) — Lagasajn handa alþýðu (Rvík 1888—1910) — Landsyjirréttardómar (Rvík 1875—1920) — Lovsamling for Island (Kbh. 1853—1899) — Ch. de Martens, Causes célébres du droit des gens (1827) -— Christopher B. V. Meyer, The Extent oj Jurisdiction in Coastal IEaters (Leiden 1937) — M. W. Mouton, The Continental Shelf (Ilaag 1952) -— Ólafur Jóhannesson, Lög og réttur (Rvík 1952) — Stefan Riesen- feld, Protection of Coastal Fisheries undcr International Law (Washington 1942) — Amold Ræstad, Kongens Strömme (Krist- iana 1912) — Stjórnartíðindi — Tíðindi um stjórnarmálefni Islands (Kbh. 1864—1875). 93
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.