Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1960, Blaðsíða 25

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1960, Blaðsíða 25
BÓKIN fletta henni varfærnislega, það hafði fulltrúinn kennt honum, en brátt af meiri ákefð. Það voru myndir í bókinni, en hann gaf sér ekki tíma til aö skoða þær núna, og Mattis lét sig líka lesmálið meiru skipta en myndirnar. Hann byrjaði aftur á byrjuninni. Egyptar. Las. Pýramídarnir. Hann las. Það var reyndar kalt hér í skógarjaðrinum þrátt fyrir sólskinið. Þetta var snemma árs. Það setti brátt hroll að Mattisi, þar sem hann lá og las. Hann ók sér nokkrum sinnum, lyfti höfði og leit í kringum sig ánægður á svipinn, eins og hann kynni vel við sig í félagsskap trjánna. Mattis las ekki eins og fólk ger- ist og gengur. Lesturinn heltók hann eins og hitasótt. Augun þutu yfir línurnar eins og kólfi væri skotið, en bókstafirnir urðu að litlum sprelllifandi dýrum, sem sentust inn í heila hans og iðuðu þar og fiðruðu, svo að blóðið svall í æð- um hans. Og þótt efnið væri sterkt og hrífandi eins og í þessari bók, var líkt og atburðir og persónur stykkju alsköpuð út úr höfði hans, eins og liann skajiaði þetta allt sjálfur. Það var liðinn alllangur tími, og Mattis var kominn aftur í Persa. Nú rank- aði hann ónotalega við sér, stóð upp með erfiðismunum og komst á stað aftur með bókina undir hendinni. Þegar hann beygði inn á hina fáförnu götu milli skurðanna, reyndi hann að lesa gangandi, en bókin var ákaflega þung, hann kenndi til í handleggjunum og brjóstinu, sem hann studdi bókina við. Hann hrökk líka við þegar hann sá, hve mikið hann var búinn að lesa. Þótt liann ætl- aði sér að lesa bókina oft, átti hún að endast að minnsta kosti í mánuð. Þegar hann skömmu síðar fór framhjá rjóðri í kjarrskóginum og sá hve síðdegissólin skein aðlaðandi, gat hann ekki lengur staðizt mátið. Hann laum- aðist þangað, settist við digran og dökkan hvítþyrni og tók til óspilltra mál- anna við lesturinn. Hann las um Grikki. Og nú varð honum ljóst, að hann gæti ekki hætt fyrr en myrkrið skylli á. Það mátti einu gilda, hvort hann lægi á grasbletti undir þungbúnum hvítþyrni eða hvort hann hefði legið úti á yztu endimörkum veraldar. Hann hlaut að lesa. Það skipti engu máli, hvort mamma lians væri farin að óttast um hann, því að hann var eins og maður sem orðinn er viðskila við ættfólk sitt. Hann var mannsandinn horfinn á vit fortíðarinnar. Hvernig gat staðið á því, að hann var orðinn tólf ára án þess að hafa heyrt getið um Grikki, um Laugaskarð og Leonidas, um Þemistokles? Þjóðirnar tóku á sig mynd í huga hans. Þær strit- uðu, reikuðu um, háðu styrjaldir, sóttu á höf út, fundu upp gler, lituðu klæði sín purpura. Og nýjar hersveitir voru í heiminn bornar. Kartagó, Róm, Mar- íus, Cesar, Augustus, Kimbrar og Vandalar. Katakomburnar. 103
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.