Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1960, Page 28

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1960, Page 28
TIMARIT MALS OG MENNINGAR sótt, hugsaði hann, maður verður víst veikur, ef til vill deyr maður. En ]iað sem ég hef lesið .. . Hann hjúfraði sig máttfarinn upp að hlýjum líkama bróður síns, sem lyktaði af síld og kartöflum. Uti í næturmyrkrinu er móðir hans að leita að föður hans. Hún er hrædd við allt, hrædd við krána, hrædd við myrkrið, hrædd við reiði föðurins, hrædd um heilsu drengsins. Mattis getur heyrt hana ganga fram og aftur. Það er mér að kenna, hugsar hann og hann brestur í grát, hann grætur, honum léttir og hann dettur út af. En sýnirnar sækja á hann. Hann er Kristófer Kolumbus, sem stendur á þil- farinu á santa Maria og starir vansvefta augum yfir hafið. Rúmbálkurinn er Santa Maria, og Mattis finnur greinilega undiröldu Atlantshafsins, því að honum finnst allt ganga í bylgjum. Þá kemur hann auga á eitthvað í fjarska. Kannski það sé höfðagaflinn á rúmi foreldra hans, sem mótar fyrir í myrkr- inu? Nei, það er fyrsta eyjan sem rís úr hafi. Hinn nýi heimur! Þá krýpur Kristófer Kolumbus á kné á þilfarinu á Santa Maria og þakkar skaparanum grátandi fyrir allar hans miklu gjafir . . . Jón Eiríksson þýddi. 106

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.