Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.1960, Page 59

Tímarit Máls og menningar - 01.04.1960, Page 59
AÐ VERA ÍSLENDINGUR saman við aðrar þjóðir án þess að gæta fyllstu varkámi. Pólitík [segir Jón Helgason] er hér á landi rekin af meiri ofsa en í nálœgum lönd- um; hvernig annarsstaSar er, veit ég ekki. Ilenni er flœkt inn í alla hluti; allir kvarta undan fressu, en enginn fœr viS þaS ráSiS. ViS fietta vœri sjálfsagt unandi ef öllum Jyessum látum fylgdi einhver verulegur ár- angur landinu til frama, eSa ef stjórnmála- mennirnir hejSu sýnt sérstakan dugnaS eSa frábœra hœfileika í forustu fyrir málum þjóSarinnar. En því er ekki aS heilsa. Ef nefna ætti þau Evrópidönd sem bezt hafa haldiS á málum sínum á undanförnum ár- um, þœtti mér harla ólíklegt aS nokkur mundi tilnefna ísland; ég er hrœddur um aS þaS kœmi heldur aftarlega í röSinni. Flestir mundu líklega setja Sviss í efsta sœti, en um þaS land er sagt aS hvergi sé pólitískur ofsi minni en þar og landsmál hvergi rœdd af jafnóhlutdrœgri stillingu sem í svissneskum blöSum. (1. des. 1954: bls. 291.) Þreltán árnm fyrr liefnr Jón Helgason lalað um „liið vesala og útkjálkalega póli- tíska þras sem lengi liefur verið íslenzkt átumein“. Það þarf ekki að geta þess að þær skoð- anir sem fram koma í þessnm orðum ern vanalega boðaðar að viðbættnm anmingja- skap, sem ritum Jóns IJelgasonar er fjarri. Pólitík á Islandi hlýtur að vísu óhjákvæmi- lega að vera útkjálkapólitík, það liggur í hlutarins eðli; og allra sízt ber að neita ves- aldómi þeirra íslenzku stjórnmálamanna sem mestu hafa ráðið um íslenzk mál á iindanförmim áratugum. En ég get ekki varizt þeirri löngun að gera nokkrar at- hugasemdir við þann skoðunarmáta sem hér kemur í ljós. Pólitík útkjálkans, próvinsumiar, er allt- af vesöl frá sjónarmiði höfuðstaðarins. En höfuðstaðnum nægir ekki að fyrirlíta póli- tík útkjálkans, heldur vill hann, — raunar oft af taktískri nauðsyn, — koma próvinsu- mönnum til að líta á pólitík sjálfra sín frá sjónarhóli höfuðstaðarins. Aróðurinn í þessa átt er svo harður að það er mjög erf- itt í móti að standa, og það því fremur sem höfuðstaðurinn beitir öllum brögðum til að klæða sína pólitík kufli virðnleikans og rétt- mætisins. Það tekst honum oft í skjóli þess að útkjálkinn kynnist aðeins forldið höfuð- staðarins. Utkjálkinn skal sem sagt blygð- ast sín fyrir afglöp sinnar pólitíkur og mikl- ast óskeikulleiki höfuðstaðarpólitíkurinnar. En ef útkjálkamanninum auðnast að opna sér nægilega gagnrýna sýn yfir pólitík höf- uðstaðarins mun hann ef til vill komast að því að afglöpin eru einnig þar; hann mun sjá að aflsmunurinn nægir ekki til að helga þau og öðlast um leið örtiggari grundvöll til að dæma einnig um sína útkjálkalegu heimapólitík. En oss Islendingiim er títt að líta á póli- tík vora frá sjónarmiði höfuðstaðarins. Það eitt að hún sé útkjálkapólitík svíður oss sárt. Eins og vér deilum ekki allajafna á lesti vora í nafni skynseminnar eða vegna þess að þeir séu oss skaðlegir heldur vegna þess að þeir séu oss „til skammar", þannig óttumst vér það mest að pólitík vor sé oss til vansæmdar meðal erlendra þjóða. Með þeirri grýlu er hægt að hræða oss til hvers sem er. Hún er meðal margs annars notuð til að láta oss auðmýkjast fyrir það sem kallað er „pólitískar æsingar" eða „pólitísk- ur ofsi“. Þetta er almannarómur: pólitískar æsingar, pólitískur ofsi er „blettur á þjóð- inni“ og tíðkast „hvergi á byggðu hóli nema hér“. En vér ættum að minnast þess að pólitík er rekin með sínu móti í hverju landi. Og ég veit ekki hvort mikið raunsæi felst í því að óska íslendingum til dæmis hins víðfræga umburðarlyndis Breta eða hins pólitíska doða Svisslendinga. 137

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.