Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1963, Page 4

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1963, Page 4
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR unnar, Hoover, fyrir að halda vemdarhendi yfir rússneskum njósnurum! Fleming tekur það fram að enda þótt þessi móðursýki hafi nokkuð rénað á síðustu árum og spæjarar um einkamál manna séu ekki lengur friðhelgar þjóðhetjur, þá sé það kerfi sem komið var á fót á verstu árum Maccarthyismans ennþá óskert og fullkomlega nothæft. Kenningin sem allt þetta kerfi hvíldi á, segir Fleming, var sú að kommúnisminu væri smitandi sjúkdómur. Þessvegna var allra ráða lögregluríkisins og allra félagslegra þving- ana neytt til að uppræta kommúnista og ásamt þeim alla „vini vina þeirra", unz sérhver maður og sérhver hugmynd sem ekki var tryggilega merkt íhaldshugarfarinu gat búizt við lögsókn. Þessi terror hafði sem sé þann tilgang að girða fyrir að þeir menn, sem höfðu kannski þó ekki væri nema ofurlítið öðruvísi hugmyndir um heppilegt þjóðfélag en amer- ísku auðhringamir, fengju færi á að vinna að framgangi þeirra hugmynda, — hann hafði þann tilgang að hræða menn frá að hugsa öðruvísi en stjórnin í Washington. Spjaldskrá bandariska sendiráðsins hér er aðeins ofurlítið útibú milljónaspjaldskránna í Ameríku, — og nú skulum vér hyggja að því hver nothæfni hennar geti verið hér á landi. Það er auðskilið að aðaltilgangur bandaríska sendiráðsins með upplýsingasöfnun um íslenzka menn er að skapa sér tæki sem auðveldi því að hafa bein ítök í íslenzku þjóðlífi, þ. e. a. s. þesskonar ítök sem ekki þarfnast milligöngu íslenzkra ríkisstjórna. I því sam- bandi verður að minnast þess að hemámsliðið sem atvinnurekandi og fjárfestingaraðili hefur mjög sterka aðstöðu til að beita efnahagslegum þvingunum. Og vitundin um spjald- skrána ein út af fyrir sig nægir til þess að margir menn, sem í hjarta sínu eru engir her- námssinnar, varast eins og heitan eldinn að gera nokkuð það sem gæti gefið hernáms- liðinu ástæðu til að halda að þeir hugsi ekki „rétt“. Þá er spjaldskráin ekki einskisvert stjómtæki gagnvart svo ístöðulitlum höfðingjasleikjum sem margir íslenzkir embættis- menn eru; það er ekki ólíklegt að hættan á því að verða ekki talinn hæfur til að sitja ráðherra- og sendiherraboð, til að fara í opinberar sendiferðir til Ameríku, til að fá að- gang að rotary-klúbbum eða frímúrara-reglum, valdi allmiklu um það að rnargur sá menn- ingarfrömuður sem mælti drengilega gegn innlimun lslands í stríðsapparat Bandaríkjanna á sínum tíma, hefur nú lengi þagað þunnu hljóði og hagað sér í einu og öllu eftir því boðorði að hemámsmálin séu svo „viðkvæmt" mál að á þau megi ekki minnast. En spjaldskrá sendiráðsins er reyndar ekki einvörðungu hinn ógnandi refsivöndur sem á að kenna íslendingum smámsaman að „hugsa rétt“. Iiún hefur einnig það hlutverk að vera til taks ef til „alvarlegra atburða" kæmi á Islandi, þ. e. a. s. ef íslenzkir kapítalistar þyrftu til dæmis að kalla hið ameríska hervald sér til hjálpar, þegar svo væri komið fyrir þeim að þeir ættu á hættu að missa völd sín. Þá væri spjaldskrá bandaríska sendiráðsins nauðsynlegt tæki til að „einangra" íslenzka kommúnista fljótt og vel. Það er lítill vafi á því að amerísk herseta á Islandi er ekki sízt kær hernámssinnum vegna þess að þeir álíta að hún sé völdum þeirra trygging. Til þess bendir meðal annars þessi játning sem gamall íhaldsmaður, fyrrum læknir á Norðurlandi birti í Morgunblað- inu í miðri kosningaorrustunni um daginn: „Það er raunalegur sannleikur að hér mætti búast við borgarastyrjöld, e/ öjgamenn hejÖu ekki aðhald aj erlendum her.“ Þessi yfir- lýsing, sem er varla birt út í loftið, er að vísu afskapleg. Hún er þó ekki annað en opinber játning þess sem lengi hefur verið hugsað í hljóði og skýrir það, að hemámsblöðunum þótti ekki nema eðlilegt að bandariska sendiráðið væri miðstöð Maccarthyismans gagn- vart íslendingum. S. D. 98
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.