Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1963, Síða 53

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1963, Síða 53
LÍTIL STEFNUSKRÁ FYRIR LEIKLISTINA 69 Allar framfarir, sérhver undirokun náttúrunnar í þágu þeirrar fram- leiðslu, sem leiðir til umsköpunar þj óðfélagsins, allar tilraunir í nýja átt, sem mannkyniö hefur ráðizt í til að hœta hlutskipti sitt, veita okkur nefnilega, hvort sem þeim er lýst í bókmenntunum sem heppnuðum eða misheppnuðum, sigurgleði og trúartraust og fá okkur til að njóta einmitt þessa: að allir hlutir skuli vera breytanlegir. Þessu kemur Galilei orðum að, þegar hann segir: „Það er mín skoðun, að jörðin sé mjög göfug og aðdáunarverð, vegna þeirra mörgu og margvíslegu breytinga, sem koma látlaust fram á henni.“ 70 Útlegging sagnarinnar og miðlun hennar með viðeigandi aöferðum, sem gera hana framandi, er aöalverkefni leikhússins. Og það er ekki leikar- inn, sem á að gera allt, endaþótt ekkert megi gera án tillits til hans. „Sögnin“ er útlögð, borin fram og höfð til sýnis af leikhúsinu í heild, af leikurunum, leiktjaldamálurunum og -smiðunum, sminkurunum, búningafólkinu, tónlistar- mönnunum og dönsurunum. Þau leggja öll list sína í hið sameiginlega fyrir- tæki, en vissulega láta þau ekki af sj álfstæði sínu fyrir það. 71 Hinn almenna gestus sýningarinnar, sem ávallt fer á undan þeim sér- staka gestus, sem verið er að sýna, efla skírskotanir tónlistarinnar til áhorf- enda í söngvunum. Fyrir því ættu leikararnir ekki „að líða yfir í“ sönginn, heldur greina hann skýrt frá öðru, en það er bezt að gera með sérstökum ráð- stöfunum á sviðinu, svo sem lj ósabreytingum eða notkun titla. Tónlistin verð- ur að sínu leyti að vera alveg gagnstæð þeirri einhæfni, sem yfirleitt er af henni krafizt og gerir hana að auvirðilegri þernu, er hugsar ekki fyrir sjálfa sig. Hún á ekki að „leika undir“, nema þá til skýringar. Hún á ekki að láta sér nægja „að túlka sig sjálfa“ með því einfaldlega að þurrausa sig þeim stemn- ingum, sem atvikin koma henni í. Þannig velti Eisler vandlega fyrir sér sam- hengi málsatvikanna, þegar hann gerði, við grímugöngu gildanna í föstuinn- gangsatriðinu í „Galilei“, sigurglaða og ógnandi tónlist, sem har með sér hina ólgandi andstöðu, er sauösvartur almúginn veitti stjörnufræðikenningum lær- dómsmannsins. Með því að syngja kalt og tilfinningalaust heppnaðist á líkan máta söngvaranum, sem lýsir björgun stúlkunnar á barninu — sýndri með látbrigðum — í „Krítarhringnum í Kákasus“, að afhjúpa hörmungar þeirra tíma, þegar móðurþel getur orðið sjálfstortímandi veildeiki. Þannig getur tónlistin á margan hátt staðið alveg sjálfstæð og tekið á sína vísu afstöðu til málefnanna, en þó getur hún líka aðeins annazt tilbreytingu í skemmtuninni. 147
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.