Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1963, Side 82

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1963, Side 82
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR eiga ekki allmiklum auðæfum að fagna af náttúrunnar hendi, hefur eymd verið afmáð með öllu. Þetta er athyglisverð staðreynd. Þeirri stað- reynd er það að þakka að þj óðfélags- leg yrkisefni af þeirri gerð sem rit- höfundar á mínu reki þráklifuðu á, þá er við vorum úngir, missa nú marks í þessum parti heimsins. Upp hlýtur að koma önnur spurníng: fyrst almennri velmegun hefur verið hrundið í framkvæmd í fjölmennum og víðlendum samfélögum, þar sem þó lifa þj óðir upprunnar við ólík skil- yrði og ekki ævinlega búa við nein sérstök hlunnindi, hversvegna er þá ekki samskonar framhrundníng end- urtekin um heimsbygðina þvera og endilánga? Eiga tvær manntegundir, þeir sem njóta allsnægta og hinir sem þjást af húngursneyð, að búa saman í þessum litla heimi um allan aldur og horfa hvor framan í annan yfrum einhverja tilvilj anlega girðíngu úr landafræðinni, einsog ekkert væri eðlilegra? Vera má að mér hafi sýnst annað stundum, en nú mundi ég ekki dirfast að fullyrða að til sé kínalífselixír. Sérhvert sjúkt svæði er vandamál út- af fyrir sig og krefst sérstakrar lækn- íngar. Flestar þær þjóðir sem nú búa við tiltölulega góða — þó reyndar misgóða — afkomu, eiga ólíka sögu að baki. Þær styðjast við ólíkar þjóð- félagsformúlur, alt frá sameignar- stefnu kendri við Marx einsog í Rúss- landi til séreignarfyrirkomulags, næstum því án formúlu, einsog við- geingst í Norðurameriku. Þarámilli liggja ýmis velgeingnislönd með hvert öðru gerólíka þjóðfélagslega hús- grind, einsog t. d. Svíþjóð og Sviss. Síðar á ævinni, þegar ég kyntist Asíu, Afriku og Suðurameriku, og sá með eigin augum volæði sem ríkir í þessum stöðum, varð mér ljóst að það sem við köllum þjóðfélagsleg vanda- mál á Vesturlöndum í dag eru hé- gómamál í samanburði við þau sem íþýngja öðrum heimshlulum. Það rann upp fyrir mér að þjóðfélags- vandamálið sjálft bíður lausnar hinu- megin við landamæri okkar; og enn- fremur að landamærum milli mann- legra allsnægta og mannlegs volæðis verður ekki komið saman og heim af neinu viti í þeirri veröld þar sem vér lifum. Hversu raunveruleg sem slík landamæri kunna að vera, þá geta þau aldrei táknað annað en raunveru- lega villu sem mannleg samábyrgð verður að leiðrétta, ella bíður heims- stríð milli fátækra og ríkra þjóða, vel og illa haldinna manna, sjúkra og heilbrigðra, með afleiðíngum sem ekki þarf að útmála. Sælukent öryggi innan landa- merkja einhvers allsnægtaþjóðfélags, eða bandalags slíkra þjóðfélaga, gæti orðið mönnum skammgóður vermir. Kanski verða þessi landamerki færð yfrá okkur þann dag sem vér ætlum síst. Mannleg samábyrgð ber í sér þá 176
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.