Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1963, Page 85

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1963, Page 85
SVÖR VIÐ SPURNINGUM RUMENSKS TÍMARITS 2 Um hlutverk rithöfundar gildir það sama: það hlýtur mjög að mótast af félagslegum aðstæðum viðkomandi þjóðar á hverjum tíma. Þó tel ég vissar meginreglur gilda, hvert sem samfélagskerfið er: að rithöfundur- inn leiti þrotlaust þess síbreytilega sannleika sem gefur hinum ytri form- um veruleikans lifandi innihald og að hann sé ætíð reiðubúinn til gagnrýni og ádeilu gegn hverskonar stöðnun og ofurvaldi þessara ytri forma — eft- ir því sem samvizka hans býður hon- um. Mér skilst að á þessari tækniöld, þar sem sjálfvirkar vélar og rafeinda- heilar munu taka æ meir við andlegu og líkamlegu erfiði mannsins, hljóti að slakna á tengslum almennings við hina vekjandi frumkrafta náttúrunn- ar sem ævinlega hafa verið sjálf upp- spretta allrar listar. Sköpuðir list- rænna verðmæta — og þá ekki sízt rithöfundar — hljóta því að telja það sína brýnustu skyldu gagnvart æsku- lýðnum að sporna við því að tækni- vísindin rjúfi hið ferska, óbeizlaða samspil mannlífs og náttúru. Jafnvel allsnægtir geta leitt mannkynið í ær- inn vanda, engu síður en örbirgðin áður, nema því aðeins að sterk and- leg og siðferðileg öfl nái valdi yfir þeirri feiknaorku sem nútíminn er að leysa úr læðingi. 3 Fyrir nær ellefu öldum tóku norsk- ir landnemar sér bólfestu á íslandi og stofnuðu sjálfstætt þjóðveldi sem stóð með menningarlegum blóma hátt á fjórðu öld og gat meðal annars af sér fræga sagnalist. Síðan gengu íslend- ingar norsku og dönsku konungsvaldi á hönd og bjuggu næstu sjö aldirnar við svo harðan nýlendukost að stund- um lá við að þeir tortímdust með öllu. Á nítjándu öld hófst loks þjóðleg endurreisn sem lauk með stofnun lýð- veldis 1944. En einmitt um sama leyti náði hin forna sagnhefð nýju há- marki með hinum miklu epísku verk- um nóbelshöfundarins Halldórs Lax- ness sem spanna yfir meginkjarna sögu vorrar og tungu frá öndverðu um leið og þau skírskota beint til dýpstu samfélagshræringa nútímans. íslendingar hafa alla tíð verið mik- il Ijóðaþjóð og höfðu löngum hið bundna mál sér að hlífiskildi þegar harðast svarf að. Með sjálfstæðisbar- áttunni öðlaðist ljóðlist þeirra nýja fyllingu, en hin síðustu ár hafa er- lend áhrif losað mjög um forna brag- hefð og hugmyndaskipan. Nútíma- ljóðin bera þess og mikil merki að ný þj óðfrelsisbarátta er hafin fyrir þá sök að landið hefur verið hersetið í rúma tvo áratugi, fyrst af bretum og síðan bandaríkjamönnum. Víst ber hér mikið á borgaralegum skáldskap, en þó má segja að viðhorf margra hinna fremstu höfunda hafi 179
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.