Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1963, Page 96

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1963, Page 96
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR er spillt með utangátta endaljóðlínum, einni eða fleiri, sem venjulega eru tilkomn- ar sakir þeirrar blindu ástar sem Hannes virðist hafa (eða hafa haft) á nokkurs kon- ar skollarími sauðarleggs (sbr. orð Stefáns Harðar í áðumefndum ritdómi, þar sem hann líkir vinnubrögðum Hannesar á stund- um við leik þess „sem styttir sér stundir við að leggja kapal, en hending ræður hvort gengur upp eða ekki“). Dæmi má finna um þetta t. d. á bls. 35, 36, 37, 53 í Kvœðabók, bls. 20, 21, 28, 35, 43 í / sumardölum, bls. 55, 63 í Stund og staðir. Eg minntist áðan lítillega á vaxandi lýs- ingarorðanotkun í kvæðum Hannesar. 1 rauninni er það stíllýti einungis einn þáttur í aukinni hneigð hans til orðaglamurs, sem með vissu gætir að marki í annarri bók hans (sbr. sérstaklega kvæði hans þar Lík- brennslustöðin í Dachau, hls. 21), en þó einna mest í þeirri þriðju og síðustu. Gott dæmi um þetta þróunarstig hjá skáldinu er Níunda rödd í kaflanum Raddir á daghvörj- um (bls. 23): Horjinn er ég jrá mennskum mönnum. Munur að búa í júlum helli saddur í hlóðareyk og raula rorra við þunga tröllagrjtu hlusta þá kraumar kjöt á eldi kroj og bógar aj feitum sauðum. Hlakka ég yfir heitum potti. Munur að vaga um víðan helli vinna sér traust og loj hjá þursum. Setjast um kvöld og sveðju brýna sveðjur og axir dengja, brýna dengja og brýna. Hver nennir að orðlengja um svona sam- setning A. D. 1963? En gleymum því og hlustum á slitróttan þyt hinnar miklu tragedíu forgengileikans: Enn skal fœra gullgrund gamalt skáld Dvalinsvín dauð er öld ... Blind ... Þung er orðin þögn, löng þessi kvöld ... söng ... silkihlín ... (Slitur úr gömlum mansöng, Kvœðabók, bls. 18). Látum liggja milli hluta, þótt eitthvað minni hér meira en lítið á stemninguna í Papyrus Ezra Pounds. Það sem meginmáli skiptir, er að hér höfum við fullgilda sönn- un þess, að Hannes Pétursson er ekki að- eins prýðisgott aáor/sskáld, þegar honum tekst upp, heldur kann hann líka að leika á næmari strengi, geja í skyn eins og meist- ara sæmir, þegar hann vill það við hafa. Annað skínandi dæmi um það er Haustvísa á bls. 42 í Kvœðabók. Störin á flánni er fölnuð og nú fer enginn um veginn annar en þú. í dimmunni greinirðu daujan nið og veizt þú ert kominn að vaðinu á ánni ... Vafalaust mætti enn margt fram tína um skáldskap Hannesar Péturssonar, þótt ég kjósi að láta hér staðar numið. Það mætti t. d. fjalla um grunnfærni hans (oftast) i ástaljóðagerð, tíðan misskilning hans á eðli einfaldleikans, falskan hljóm þeirra kvæða, sem sýnilega eru ort af hvað mestum yfir- lýsingarvilja (t. d. Söngvar til jarðarinnar). En það mætti einnig ræða margt um sér- 190
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.