Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1968, Page 29

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1968, Page 29
viSnám, er vopnaður minnihluti eða erlend ýtni leitaðist við að leggja þær undir okið. Grikkland væri slíkt frjálst ríki í voða statt og því fór hann fram á það við Bandaríkjaþing, að það veitti 400 milljónir dala til hjálpar Grikkjum og skyldi nokkur hluti þessarar fjárhagsaðstoðar ganga til Tyrklands. A þessa lund varð borg- arastyrjöldin í Grikklandi tilefni mestu straumhvarfa í heimsmálum eftirstríðsáranna. I hinum skipulagða pólitíska á- róðri sem hafinn var nú um allan hinn svokallaða frjálsa heim var þeirri skoðun dælt inn í vitund manna, að Sovétríkin ætluðu sér að stofna til heimsbyltingar með her- valdi og Rauði herinn væri búinn til stökks og mundi flæða vestur alla Evrópu Rússlandi til aukins valds og heimskommúnismanum til meiri dýrðar. Þessi áróður var rekinn af hvað mestu offorsi um það leyti er verið var að tæla smáþjóðir Evrópu inn í Atlantshafsbandalagið. Borgara- leg sagnfræði vestræn hefur á síðari árum unnið afrek, sem er henni til mikils hróss, er hún tætti í sundur þessa heimslygi og sýndi fram á með óvefengj anlegum rökum sögulegrar heimildagagnrýni, að orðrómurinn um heimsbyltingaráform Sovétríkj- anna var hreinlega fótalaus þjóðsaga. Og að því er Grikkland varðar sér- staklega stóðu Sovétríkin að fullu við hið ruddalega samkomulag, sem þeir Grikkland í fjötrum Stalín og Churchill gerðu með sér haustið 1944. En skröksagan og þjóðsagan um árásaráform Sovétríkjanna gerðu gagnið sitt. Fyrir íhlutun Bandaríkj- anna á Grikklandi gerðist hinn amer- íski stórkapítalismi sjálfskipuð heims- lögregla, er hélt til atlögu gegn hverri byltingarhreyfingu, gegn hverri upp- reisn lágstétta hvar sem var á hnett- inum. Á mestu byltingaöld í sögu mannkynsins urðu Bandaríkin hold- tekja gagnbyltingarinnar og vopnað- ur lögregluliði. Þegar Bandaríkin slógust í leikinn í grísku borgarastyrj öldánni fyrir rúmum tuttugu árum voru þau af- rennd að afli og auði og ein allra ríkja á hnettinum voru þau búin ægivopni nútímans, kjarnorku- sprengjunni. Heita mátti að allur heimurinn utan Bandaríkjanna lægi helsærður og snauður fyrir fótum þeirra. Alla stund síðan hafa þau í ofmetnaði stefnt út í hvern voðann á fætur öðrum, og menn um allan heim spyrja undrandi og skelkaðir, hvort sá næsti endi ekki í skelfingu. Hinir fornu Grikkir hugleiddu oft orð eitt á sinni tungu — hybris. Það merkir hroka þann, sem vex upp úr þeirri kennd að vera búinn miklu valdi. Þeir höfðu þá trú, að guðimir steypi þeim hrokafulla af stóli á þeirri stundu, er hann hyggur sig helzt bú- inn almættinu. Þau máttarvöld grísk, innlend og erlend, sem í steigurlæti 19
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.