Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1968, Page 52

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1968, Page 52
Tímarit Máls og menningar því opinbera stöðu sem „nóbelsskáld- ið“ — eins og hann er oft nefndur kímnilaust af löndum sínum. Þegar þess var getið í dönskum blöðum (Land og Folk 18/7 1965) að rætt væri um á Islandi að tefla honum fram sem forsetaefni, þá var vissu- lega um blaðablaður að ræða sem Halldór sjálfur gat vísað heim til föðurhúsanna með hnussi (Tíminn 20/7, Morgunblaðið 21/7). En sé þessi tilhæfulausi orðrómur tekinn sem vottur um stöðu nóbelsverð- launahafans meðal þjóðar sinnar, þá liggur þrátt fyrir allt nokkur tákn- rænn sannleikskjarni að baki. Það liggur í augum uppi að ef maður nauðugur viljugur íklæðist gervi opinbers fulltrúa þjóðar sinnar og menningarsendimanns á alþjóða- vettvangi þá verður trauðla komizt hjá að það setji svip sinn á framkomu hans. Sá sem á víxl skal hylla Svía- konung, senda heillaósk í tilefni f j örutíuáraafmælis Sovétríkj anna, heilsa Ameríku með ræðu í Ame- rican-Scandinavian Foundation, New York (Gjörníngabók, bls. 188—190) eða halda ræðu sem heiðursgestur í stórveizlu í Peking hjá The Chinese People’s Association for Cultural Relations with Foreign Countries, hlýtur að líta á það sem sjálfsagða kurteisisskyldu að forðast meiri hátt- ar deiluefni. Slíkar aðstæður virðast í sjálfu sér til þess fallnar að draga úr öllum hvassyrtum persónulegum yfirlýsingum, ekki hvað sízt í við- kvæmum pólitískum málum. Það kemur þó ekki í veg fyrir að greinahöfundurinn og ræðumaður- inn Halldór Laxness geti laumað býsna opinskárri gagnrýni í texta sinn. í áðurnefndri heillaósk i tilefni f j örutíuáraafmælis Sovétríkj anna, dagsettri í New York í nóvember 1957, kallar hann sig „a writer who for about thirty years has called him- self a socialist because he believed that socialism stood for a better life, and still thinks that if socialism does not mean the wellbeing of the people, it is an empty word“. Og hann heldur áfram: My wishes to the USSR at present as before are for all-round prosperity of its people in our day, spiritual freedom, absence of fear, an unhampered growth of the arts and sciences, a peaceful blossom- ing of the multicolored flower of civiliza- tion; for all the things that should make a socialist state a place where life is richer and the people happier than elsewhere, a place where most people would want to stay and nobody want to leave by his free will (Gjörníngabók, bls. 186). Þessi lítt dulda gagnrýni verður varla beiskjuminni fyrir þá sök að hún er borin fram í formi heillaóska. Og í Peking fengu áheyrendur sem trúlega hafa verið rétttrúaðir marx- istar meðal annars eftirfarandi að velta vöngum yfir; þar sem þessi klausa er einkennandi fyrir skoðanir 42
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.