Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1968, Page 58

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1968, Page 58
Tímarit Máls og menningar stefnu, bls. 73). Þessa yfirlýsingu má skýra betur meS lengri tilvitnun í sömu grein. „Sannleikur,“ segir Hall- dór, er rithöfundum „hugtak úr há- spekinni“: Jafnvel orðið sannleikur eitt saman íelur í sér ógeðfelda rétttrúnaSarhugmynd sem krefst viðurkenníngar i eitt skifti fyrir öll með tilstilli einhverskonar einokunar. I þeim tilfellum þar sem sannleikur merkir ekki goðsögn um staðreyndir, merkir hann goðsagnir án staðreynda. Hugtök yfirleitt, en þó einkum tilbúnar skilgreiníngar, eru góðum skáldsagnahöfundi lítt hugarhaldin. Ilonum fellur ekki að líta á veröldina einsog hólinn þar sem Opinberunin birt- ist, heldur plássið þar sem staðreyndir ger- ast; og hann gerir sér mat úr staðreynd- urn eftir því sem þær ber að, einni í senn. Sögumanni sem gleymir staðreyndum vegna áhuga síns á Opinberuninni eða boðun sannleikans, honum hættir við að lenda í sala með helgisagnariturum (bls. 70). Það mun eiga sérstakar orsakir að hér skuli rætt um hól þar sem opin- berunin birtist. Eftir öllum sólar- merkjum að dæma mun Halldór hér eiga við Cumorah Hill í New York- fylki, þar sem unglingurinn Joseph Smith að vorlagi 1820 fékk þá opin- berun sem að sögn leiddi til fundar mormónabókar og stofnunar mor- mónasafnaðar. Hann hafði nefnilega um nokkurra ára skeið haft ástæðu til að gefa sig náið að hinu sérkenni- lega samfélagi mormóna í Utah og lýsti reynslu sinni af þeim kynnum í nokkrum greinum. Þetta var í sam- bandi við vinnu hans að skáldsög- unni Paradísarheimt. Eins og svo oft áður notar Halldór í Paradísarheimt raunsanna íslenzka viðburÖi sem uppistöðu í vef frásög- unnar. Arið 1878 kom út í Reykja- vík bók sem nú er orðin sígild á Is- landi. Hún bar titilinn Lítíl ferðasaga og var rituð af bónda af Suðurlandi, Eiríki Ólafssyni á Brúnum. Hann hafði hitt Kristján níunda Danakonung og son hans Valdimar prins á feröalagi þeirra á íslandi sumarið 1874, er haldið var hátíðlegt þúsundáraafmæli byggðar landsins. Þá keyptu þeir feðgar einnig föngulegan smáhest af Eiríki og sama haust urðu meira að segja nokkur bréfaskipti milli hans og prinsins. Þegar Eiríkur lagði leið sína til Kaupmannahafnar sum- arið 1876 og burtfarardagur nálgað- ist, ákvað hann að gera vart við sig hjá Valdimar prins — þar eð honum kynni að „mislíka, að ég fyndi hann ekki, ef hann frétti, að ég hefði verið í Höfn“ (Eiríkur á Brúnum, útg. 1946, bls. 69). Þessi endurnýjuöu kynni leiddu til þess að bónda var boðið til sumarseturs konungsfjöl- skyldunnar að Bernstorff. Þar afhenti Eiríkur Valdimar prins meðal annars að gjöf koffort er sonur hans hafði smíðað. Á hallargólfinu frammi fyrir konungsfólkinu sýndi hann hvemig ljúka skyldi upp koffortinu með flók- inni trélæsingu: níu tappir á lokinu 48
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.