Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1968, Síða 60

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1968, Síða 60
Timarit Máls og menningar minnsta kosti sem samtímalýsing, er lýsing hans á trúboðsferð til ætt- jarðarinnar, sem hann tókst á hend- ur samkvæmt fyrirmælum frá kirkju- stjórninni í Utah. Þar er að finna ýtarlega greinargerð um hótanir og ásóknir af ýmsu tagi. Eiríki var oft meinuð innganga og gisting á bænda- býlum og fyrir kom að hundum var sigað á hann. Þegar hann á jóladegi hafði hlýtt messu í kirkju einni, þá gerði mikill hluti safnaðarins með prestinn sjálfan í hroddi fylkingar aðsúg að honum „með hrindingum, skömmum og hatursfullum orðum“ (bls. 155). Smám saman yfirgaf Ei- ríkur samfélag mormóna eftir ný heilabrot í trúarefnum: „Ég fór með fúsum vilja til þeirra, og með sama kjarki frá þeim aftur, þegar að ég sá þeirra villu“ (bls. 230). Hann andaðist í Reykjavík aldamótaárið 1900. Þannig eru í stórum dráttum örlög þess manns sem Halldór Laxness hef- ur lagt til grundvallar sinni eigin frá- sögn um bóndann Steinar Steinsson í Hlíðum. Hann hefur vitaskuld hag- nýtt sér þau atriði er veruleikinn hefur sjálfur lagt til málanna — reyndar á miklu fleiri stöðum en unnt hefur verið að nefna í undan- farandi endursögn. í gerð hans fær sagan að sjálfsögðu nýja og þýðing- armikla drætti þar sem maður hneig- ist til að leita persónulegs mynst- urs, inerkingar, siðalærdóms. Þegar Steinar Steinsson hefur komið sér fyrir í Utah, býr hann sig undir að taka á móti fjölskyldu sinni frá íslandi. Hann hefur ekki séð sína nánustu frá því hann einn morgun snemma yfirgaf konu og tvö börn til að heilsa upp á konunginn í Danmörku. Eftir að hafa orðið fyr- ir vonbrigðum með þann fund sem hann í kyrrþey virðist hafa bundið miklar vonir við, tekur hann strikið beint frá Kaupmannahöfn til Utah í nýjum framtíðardraumi. Endurfund- ir hans og fj ölskyldunnar í fyrir- heitna landinu verða öðruvísi en ætlað var. Konan hefur dáið um borð í innflytjendaskipinu og líki hennar verið sökkt í sæ, og honum finnst hann vera orðinn ókunnugur börnum sínum eftir margra ára fjar- veru — þessum börnum sem höfðu tignað hann; þeirra vegna var það sem hann fór út í heiminn. Trúboðs- ferð hans til ættjarðarinnar veldur honum sárum vonbrigðum. Steinari og kenningum hans er einungis tekið með hálfvelgju og gríni hjá löndum hans. Menn vilja bjóða honum brennivín og láta hann segja frá því hvað hann á margar konur. Enginn nennir lengur að leggja á sig að for- mæla mormónum eða gera að þeim aðsúg. Hér eru engar minnstu líkur fyrir hinu allralítilmótlegasta píslar- vætti, auk heldur meir. Að lokum hefur Steinar á göngu sinni um sveit- ir komið í kunnuglegan stað: 50
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.