Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1968, Page 61

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1968, Page 61
Halldór Laxness á krossgötum Og nú veit ekki mormóninn fyr til en hann er kominn austrundir Steinahlíðar. Þegar hann kemur að Hlíðum einn dag nær miðjum aftni á túnaslætti, rekur hann í rogastans að finna hér aungan bæ. Þó fanst honum ekki lengra síðan en i gær að hann fór á fætur einn morgun snemma, kvaddi bömin í svefni, en konan stóð tára- full á bæarhellunni og horfði á eftir vitr- asta manni heimsins þar sem hann hvarf fyrir fjallshymuna. Ekkert hefði honum fundist sjálfsagðara en finna hér alla hluti einsog hann hafði skilist við þá og mega gánga að bömunum sofandi og vekja þau með kossi. Nú undrar hann mest á því að túnið er orðið beitarhagi fyrir ókunnugt fé. Og það var sök sér þó bærinn væri horfinn, hefði ekki dyrahellan þar sem konan stóð einnig verið sokkin. Hverjir vom tveir þögl- ir titlíngar er hófust uppúr heimulurunnum og hvannstóði þar sem áður hafði verið bærinn, og voru horfnir í bláinn? (bls. 299 —300). Svo ber að vegfaranda er kemur auga á Steinar sem hefur tekið til höndunum að stinga hrundum stein- um í vallargarð sinn, þann er áður hafði verið sveitarprýði og stolt eig- andans: Hver ert þú, spyr þessi ferðamaður. Hinn svarar: Ég er sá maður sem heimti aftur Paradís eftir að hún hafði leingi verið týnd, og gaf hana bömum sínum. Hvað er slíkur maður að vilja hér, spurði vegfarandinn. Ég hef fundið sannleikann og það land þar sem hann býr, áréttaði vegghleðslu- maðurinn. Það er að vísu allmikils vert. En nú skiftir mestu máli að reisa við aftur þennan vallargarð. Síðan heldur Steinar bóndi áfram einsog ekkert hefði í skorist að leggja stein við stein í hina fornu veggi uns sólsett var í Hliðum undir Hlíðunum (Bls. 300—301). Með þessum orðum rennur sagan til þurrðar. Þau hljóma að minnsta kosti ekki eins og neinn sigurlúður. Miklu fremur felst í þeim blær upp- gjafar og einmanakenndar. Hver er sú lífsreynsla er Halldór hefur viljað tjá í þessari mynd? Hvað er það sem hefur tekið hug hans fanginn í sög- unni um íslenzkan almúgamann sem yfirgaf allt í von um að finna „sann- leikann og það land þar sem hann býr“, finna Paradís handa bömum sínum? í bókinni er að finna klausu er virðist varpa sérstöku ljósi á innri merkingu verksins. Steinar hefur hitt að máli mormónatrúboðann Þjóðrek „biskup“ heima á íslandi og spyr hverju hann hafi kostað til að verða mormón. Svarið hljóðar svo: Mormón verður sá einn sem hefur kostað öllu til, sagði hann. Það kemur einginn með fyrirheitna landið til þín. Þú verður að ganga sjálfur yfir eyðimörkina. Þú verð- ur að kveðja fósturland, ætt og eign. Sá maður er mormón. Og þó þú eigir ekki heimahjá þér nema blómstrin, sem menn kalla illgresi á íslandi, þá kveðurðu þau. Þú leiðir stúlkuna þína únga og rjóða á stað útí eyðimörkina. Sá maður er mormón. Hún ber barnið ykkar á handleggnum og hallar því að sér. Þið gángið og gángið dag og nótt, vikum og mánuðum saman með hjöl- urnar ykkar á handkerru. Viltu verða mor- món? Einn dag sígur hún í hné af húngri og þorsta og er dáin. Þú tekur úr fángi hennar hana litlu dóttur ykkar sem lærði 51
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.