Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1968, Side 67

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1968, Side 67
Halldór Laxness á krossgötum Afneitun hinnar pólitísku fortíðar höfundar eins og hún birtist í Skálda- tíma er með allt öðrum hætti opin- ská og ástríðuheit. Það getur bent til þess að honum hafi fundizt stjórnmálafjötrarnir harðari og vægðarlausari. Að minnsta kosti hefðu þeir átt að hafa áþreifanlegri afleiðingar fyrir samskipti hans við landa hans af ýmsum stéttum og með- bræður hans yfirleitt. í veraldlegu þjóðfélagi eru stjórnmálaskoðanir og yfirlýsingar — einkum og sér í lagi róttækar — venjulega afdrifaríkari en trúarsannfæring. Klausa um Drúsa í grein frá ísrael, upphaflega ritaðri á dönsku sem kjalb aragrein í Politiken (5/4 1964), varpar Ijósi á afstöðu skáldsins til skoðana — og trúarkerfa. Halldór minnir á hversu erfitt sé að komast eftir trúarskoðunum Drúsa: þeir séu hvorki múhameðstrúar, kristnir eða gyðingar: Á hvað trúa þeir þá? Þar fær maður nú loðin svör, ekki síst af drúsum sjálfum og ber það til að eingin skylda er þeim runnin í merg og bein áiíka og sú að láta aldrei neitt uppi við ókunnuga um trú sína. Þama kom það, hugsaði ég. Segja aldrei trú sína, — skyldi þetta ekki blátt áfram vera frum- skylda manns gagnvart sjálfum sér og öðr- um? Hvern varðar um það hverju ég trúi eða trúi ekki, eða bvort ég yfirleitt trúi á það að trúa. Sá sem spyr mig getur étið það sem úti frýs. Mundi ekki slík afstaða tryggja menn fyrir því að þeir séu kallaðir öllum illum nöfnum ellegar lamdir og jafn- vel drepnir fyrir það sem þeir balda rétt, einsog laungum hefur þótt góð latína í heiminum (Upphaf mannúðarstefnu, hls. 38). Að vísu er hér ekki fyrst og fremst rætt um trú heldur að láta hana uppi. Engu að síður má þó segja að klaus- an birti einnig ákveðna tortryggni gagnvart trúnni sem slíkri: trúin er svo að segj a ekki verð þeirrar áhættu er játandinn tekur. Annars hefur Halldór frá fornu fari samúð með fá- skiptni þegar um er að ræða tjáningu tilfinninga eða innstu hugrenninga. Hann virðist stundum hafa litið á þessa aristókratísku dul sem sérstakan íslenzkan eiginleika, og fer sú skoðun engan veginn í bága við frásagnir fornsagnanna. 6 Með hið persónulega uppgjör í Skáldatíma ,í huga geta ákveðin mótíf úr fyrri verkum skáldsins birzt í skýr- ara Ijósi. í viðtali í Arheiderbladet í Noregi 14/8 1965 sagði Halldór um Gerplu — sem svar við tilvísun til þess að hún væri af mörgum álitin „hans morsomste bok“: Det er den mest tragiske bok jeg har skrev- et. Jeg har skrevet den under store lidelser. Parallellene skulle være klare nok. Vi vil aldrig glemme de skalder og helter som rente i forefarene til Stalin og Hitler. Hirðskáldin í Gerplu virðast nánast vera hreinir veruleikafalsarar. Kvæði þeirra gefa ýkta glæsimynd af jöfrin- 57
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.