Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1968, Page 75

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1968, Page 75
eftirtektarverð, ekki hvað sízt sem vitnisburður þess hve fær Halldór ennþá er að lýsa með innlifun og samúð lífsreynslu sem liggur eins fjarri kaldranalegu afskiptaleysi og efahyggju og framast er kostur, reynslu sem virðist horfa móti trúar- mýstík. Það er ekki út í bláinn að Kórvilla á Vestfjörðum ein þessara sjö sagna ber einkunnarorð: „Si me vis esse in tenebris“. Uppruna er ekki getið, en setningin er sótt í þekkta klausu í De imitatione Christi eftir Thomas a Kempis. Þetta eru upphafsorð klausu er Halldór þýðir svo í Vefaranum mikla frá Kasmír: „Ef það er vilji þinn, að ég sé í myrkri, þá sértu blessaður, og þóknist þér að leiða sál mína í mikið ljós, þá sértu aftur bless- aður. Þóknist þér að hugga mig, þá sértu blessaður. Og viljirðu, að ég sé hryggur, þá sértu einnig og ávalt blessaður“ (bls. 308). Halldór hefur sjálfur sagt að lest- ur Thomas a Kempis hafi verið sér úrslitahvatning til klausturvistarinn- ar og trúhvarfs til kaþólsku á tvítugs- aldri (sbr. bók mína Vefarinn mikli, fyrra hindi, bls. 99 og áfram). í úr- slitaverki æskuáranna, skáldsögunni Vefarinn mikli jrá Kasmír (1927) sem í hálfgegnsæju dulargervi lýsir meðal annars þessari persónulegu reynslu, þar hefst 65. kafli einmitt á nýlega tilvitnuðum orðum Thomasar a Kempis á latinu og íslenzku (bls. Halldór Laxness á krossgötum 308). Kaflinn í heild er svo settur fram sem löng bæn til guðs að fá að ganga upp í trúnni á Krist. Eftirfar- andi má kalla einkennandi: I>ú liefur leitt raig út í myrkrið og fylt sál raína af forboðun minnar eigin glöt- unar til að sýna mér, að ekkert er til inn- an endimarka tilverunnar, er fái huggað mig, meðan ég afneita eigi sjálfum mér. Þú hefur leitt sál mína í mikið myrkur, til þess að ég misti alt traust á eigin mætti og fyndi þig (bls. 320). Ég hef birt hér þessar tilvitnanir til að gefa ofurlítið hugboð um þau hugmyndatengsl sem einkunnarorðin „Si me vis esse in tenebris“ geta vakið hjá höfundinum. Atburðimir í Kórvillu á Vestfjörðum gerast ann- ars i alíslenzku umhverfi. Kona liðlega fimmtug er ein eftir kvöldið fyrir jónsmessu ásamt þremur börn- um á bænum þar sem hún þjónaði frá þvi hún var tíu ára. Er hún hefur les- ið kvöldbænir með börnunum gengur hún fáein skref niður með bæjar- læknum til að líta eftir saltfiski sem liggur í bleyti. En á þessari stuttu stundu rekur skýjabakka hratt inn yfir landið utan af hafi: Þetta gerist með þúngum köldum súgi, sem þó ekki er beint vindur. Það var eins- og nokkrar yfirvættis tröllverur drægi hrá- skinn ofar jörð og sjó milli fjalla og breiddu þetta með forógnahraða oná alt. I einu vetfángi er byrgt fyrir sólu. Hann setur á með úrsvala þoku svo ekki gerir betur en sjá handaskil. A samri stundu þagnar hver fugl á sjó og landi. (Sjöstafa- kverið, bls. 105—106). 5 TMM 65
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.