Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1968, Side 93

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1968, Side 93
Gunnar Benediktsson Þrjú ung sagnaskáld Ég íékk þaff út úr umræðum um bók- menntir í útvarpinu í vetur, að þrjú væru þau ungu sagnaskáldin, sem fyrst og fremst væru fulltrúar nýs frásagnarmáta á ís- lenzkri tungu, þar sem jafnframt væri dýpst skyggnzt inn í viðfangsefni og sálar- djúp okkar stórmerkilegu tíma. Þessir höf- undar eru lárviðarskáldið sjálft, Guðbergur Bergsson, Steinar Sigurjónsson af Akra- nesinu og Svava Jakobsdóttir, sem virðist bundin sérstökum venzlaböndum grjóti úr Búlandstindi. Og nú ætla ég að fara nokkr- um orðum um bækur þeirra, sem út komu á síðastliðnu ári. Góða veizlu gera skal 1. Við skreppum fyrst í Veizluna undir grjótveggnum hennar Svövu. Það er virðu- leg veizla og skilur eftir margar ánægju- legar endurminningar. Bókinni Veizlu und- ir grjótvegg er gefinn undirtitillinn sögur og hefur inni að halda 10 stuttar frásagnir. Allar eru frásagnir þessar nokkuð góðar bókmenntir og sumar mjög góðar. Frá- sögnin er látlaus, einnig þar sem farið er út í öfgakennda atburðarás, málfar hreint og vandað, og mótun hverrar selningar virðist lúta ströngum aga. í kjölfar annarr- ar vandvirkni kemur óvenjulegur hrein- leiki af prentvillum, sem er alþekkt ein- kenni fjölda þeirra bóka, sem út koma á þessari hraðans öld. Hver frásögn tekur mann með sér um leið og hún hefst og leiðir mann ljúflega við hönd sér allt til loka. Megininntak sagnanna er tómleiki lífsins mitt í íburði ríkmannlegra lifnaðar- hátta. Veizla undir grjótvegg er ágætlega valið tákn þess inntaks. Veikt og viðkvæmt blómaskrúðið hallar sér upp að veggnum, sem hlaðinn er úr grjóti fluttu með ærnum kostnaði af fjarlægasta landshorni, og skrýðir hann. í þessum grjótvegg á engin lífsjurt heimilisins rót sína, en skugga af honum leggur yfir daglegt líf. Táknrænt ógnar hann með hruni yfir heimilið. Hann er tákn hins lífvana hégóma, sem menn fela líf sitt í hendur, fórna fé sínu og því lífsöryggi, sem því er tengt. Hver sagan af annarri er gagntekin þessum beisku sann- indum nútímalífsins. — Snorri situr eins og útlagi í nýja húsinu, kvöldið sem konan heldur sýningu á því fyrir saumaklúbbinn. Hann átti ekki einu sinni fyrir sérríflösk- unni, sem hann kom þó með úr vinnunni um kvöldið í kjölfar heiftarlegrar hjóna- sennu um morguninn, en í gær fóru allir hans peningar í grjótvíxilinn. í veizlunni var það lokaósk hans, að augu þeirra hjón- anna gætu mætzt eins og augu Tómasar og Freyju. En svo gat ekki orðið, því að hús- freyjan var önnum kafin við að bjóða meira sérri. Hann mundi ekki, hvort Tómas átti grjótvegg, en lesandinn fær það á til- finninguna, að svo muni ekki verið hafa, þar var enginn grjótveggur, sem hindraði að hann gæti mætt augum konu sinnar. •— I annarri sögu kynnumst við hjónum, sem þurftu að koma sér upp baðstofu í kjall- 83
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.